Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 30. janúar 2019 kl. 10:00 á Akranesi.
Mættir: Jóhanna F Jóhannesdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson. Linda Kristjánsdóttir var á fundi um Workplace. Vilborg Lárusdóttir sat fundinn.
Svæðisfulltrúar, Aldís Olga Jóhannesdóttir, Berit Sveinbjörnsdóttir og Jóhann Björn Arngrímsson. Hrefna Frímannsdóttir var á fundi um Workplace.
Dagskrá.
- Endurskoðuð rekstraráætlun fyrir árið 2019.
Fjallað um endurskoðaða rekstraráætlun fyrir árið 2019.
- Tækja- og búnaðarlisti 2019.
Farið yfir tækja- og búnaðarlista fyrir árið 2019, samtals eru óskir um tækjakaup um 40 m.kr.
- Undirbúningur ársskýrslu.
Rætt um ársskýrslu ársins 2018. JFJ fór yfir helstu atriði sem þurfa að vera í ársskýrslu, fundarmenn sammála um að uppsetning skýrslu verði með svipuðu sniði og undanfarin ár. Óskað var eftir að sendar yrðu upplýsingar um gjafir sem borist hafa.
- Starfsáætlun til 3 ára og endurskoðun skipurits.
Rætt um starfsáætlun til 3 ára og endurskoðun skipurits. Gert er ráð fyrir að næsti fundur með svæðisfulltrúum fari að mestum hluta í að ræða endurskoðun starfsáætlunar, en núverandi áætlun rann út um áramótin.
- Velferðarstefna.
JFJ kynnti útgáfu á nýrri Velferðarstefnu samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi.
- Kynning á verkefnum mannauðsstjóra.
Vilborg Lárusdóttur fór yfir helstu verkefni mannauðsstjóra. Skýrt kom fram hjá henni að hún liti á starfið sitt sem stuðning fyrir starfsmenn og stjórnendur. Fram kom í máli hennar að gert verði ráð fyrir innleiðingu Workplace fyrir alla starfsmenn þann 12. febrúar. Fór yfir og kynnti kosti Workplace.
Fulltrúar buðu Vilborgu velkomna til starfa.
- Reikninga- og innheimtukerfi fyrir HVE.
ÁÁ fjallaði um innleiðingu á nýju reikninga- og innheimtukerfi fyrir HVE.
- Breyting á gjaldskrá fyrir mötuneyti HVE og á út seldum mat.
ÁÁ lagði fram tillögu að nýjum verðum fyrir mötuneyti HVE og verð á út seldum mat. Nefndi að hin nýja gjaldskrá tæki mið af skattamati Ríkisskattstjóra og að verðskrá hafi ekki breyst frá 1. apríl 2016.
Verðskrá frá 1. mars 2019:
Hádegisverður, eftirréttur innifalinn 520
Eftirréttur 170
Kvöldverður 260
Næturmatur 260
Morgunverður 230
Skyr 170
Súpa og brauð 170
Kökuskammtur 120
Salatbar og súpa 520
Ávextir 1 stk 100
Gestir og þjónustuaðilar greiði tvöfalt gjald.
Ofangreind gjaldskrá var samþykkt og tekur gildi frá 1. mars 2019.
- Tímaskráningarkerfi. Endurskoðun á reglum og samþykktir vinnuskýrslna.
ÁÁ lagði fram tillögu að endurskoðum reglum um viðveru- og fjarvistarskráningu í vinnustund.
Reglurnar voru samþykktar.
- Undirbúningur starfsmannafunda.
Rætt um fyrirhugaða starfsmannafundi.
- Önnur mál.
JBA ræddi um um innleiðingu á nýju auðkennis- og lyfjaeftirlitskerfi fyrir stofnanir og lyfsölu. En fyrir liggur að setja þarf upp búnað til að fylgjast með mögulegum fölsunum á lyfjum.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 12:30
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.