Fundur framkvæmdastjórnar, miðvikudaginn 20. febrúar 2019 kl. 9:00, haldinn á Akranesi.

 

Mættir:           Jóhanna F Jóhannesdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.   Linda sat fundinn um fjarfundarbúnað.

 

Dagskrá

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar.

Fundargerð frá 13. febrúar 2019 lögð fram og samþykkt.

  1. Sérfræðiþjónusta á starfssvæði HVE.

Fjallað um sérfræðiþjónustu á starfssvæði HVE og helstu áhersluatriði.

  1. Skipan í öldungaráð Akraneskaupstaðar.

Lagt fram bréf Akraneskaupstaðar frá 8. febrúar 2019 um skipun fulltrúa frá HVE í öldungarráð Akraneskaupstaðar 2019 til 2022.  Gera má ráð fyrir að erindi komi frá öðrum sveitarfélögum innan HVE.  Framvegis mun JFJ senda slík erindi beint á heilsugæslunnar á hverjum stað fyrir sig sem munu skipa fulltrúa.

  1. Endurskoðun starfsáætlunar og skipurits HVE.

Rætt um starfsáætlun og skipurit HVE.  En síðasta starfsáætlun var fyrir árin 2016 til 2018.

Samþykkt að fundað verði með fulltrúum starfsstöðva um endurskoðun á áætluninni.

Þá var fjallað um breytingar skipuriti sem hefur verið í gildi frá árinu 2011.  JFJ mun vinna að endurgerð skipuritsins fyrir næsta fund.

  1. Mannauðsmál.
  2. Heilsugæslan á Akranesi.

Rætt um læknamönnun á heilsugæslunni á Akranesi. Samþykkt að auglýsa hið fyrsta eftir heilsugæslulækni.

  1. Læknisþjónusta háls- og bakdeildar Stykkishólmi.

Rætt um læknisþjónustu háls- og bakdeildar, en yfirlæknir hefur sagt upp stöðu sinn frá mars að telja.

  1. Sumarleyfi og þjónusta.

Rætt um skipulag og starfsemi í sumar.  Þá var umræða um rekstur biðdeildar á Akranesi.

  1. Skólahjúkrun í Ólafsvík.

Rætt um skólahjúkrun í Ólafsvík.

  1. Heilsugæslustöðvarnar á Snæfellsnesi.

RM fjallaði fundi þeirra LK um samstarf heilsugæslunnar á Snæfellsnesi.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:30

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.