Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 20. mars 2019 kl. 9:00 á Akranesi.
Mættir: Jóhanna F Jóhannesdóttir, Rósa Marinósdóttir og Ásgeir Ásgeirsson. Þórir Bergmundsson er í orlofi.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar.
Fundargerð frá 6. mars 2019 yfirfarin og samþykkt.
- Jafnlaunavottun, upplýsingar og undirbúningur.
Fjallað um jafnlaunavottun, á fundinn kom Vilborg Lárusdóttir og kynnti málefnið og fór yfir næstu skref. Óskað eftir því að framkvæmdastjórn færi yfir matskerfið og skilaði áliti og tillögum eftir um mánaðartíma.
Samþykkt að Vilborg haldi áfram með og stýri jafnlaunavottuninni ásamt þeim verkefnum sem snýr að málefninu. Vilborg sat fundinn til loka dagskrár.
- Öryggiskerfi – staða skoðunar.
Fjallað um öryggiskerfi fyrir vakthafandi starfsmenn og þá sem sinna móttökum. Fram kom að formaður öryggisnefndar hafi ásamt ÁÁ farið á kynnisfund hjá öryggisfyrirtæki um möguleika í þessum málefnum í síðust viku og fundað verði með öðrum slíkum aðila í næstu viku.
Rætt og samþykkt að unnið verði hratt að úrlausn.
- Erindi frá Vinnumálastofnun.
Lagt fram erindi frá Vinnumálastofnun dags. 12. mars 2019 um möguleika á að ráða háskólamenntaða atvinnuleitendur með fjárstyrk frá Vinnumálastofnun. Rætt um málefnið.
- Orri – Mannauðskerfi ríkisins, upplýsingar af fundi með fulltrúum Kjara- og mannauðssýslu ríkisins.
Fjallað um fund sem haldin var með fulltrúum Kjara- og mannauðssýslu ríkisins föstudaginn 15. mars s.l. Samþykkt að innleiða leyfisóskir starfsmanna og skoða fleiri kerfishluta sem eru í boði.
- Stórnendafundur 10. apríl – undirbúningur.
JFJ lagði fram drög að dagskrá með stjórnendum sem haldin verður á Hótel Hamri 10. apríl 2019.
Rætt um málefnið, samþykkt að stefnt verði að útgáfu starfsáætlunar með gildistímanum 2019 til 2021.
- Breyting á prófunarstað SÖGU fyrir EL
JFJ kynnti að embætti landlæknis hafi ákveðið að hætta að nota HVE sem prófunarstað sögukerfisins og færa á Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
- Mislingar
RM fjallaði um stöðu mála er snúa að mislingafaraldri og þær ráðstafanir sem gripið var til. En gert er ráð fyrir miðað við óbreytta þróun verði viðbúnaði lokið þann 26. mars n.k.
- Mannauðsmál
- Úttekt á mönnun og verklagi á skurðstofu og svæfingu.
RM fjallaði úttekt á mönnun og verklagi á skurðstofu og svæfingu, en niðurstaðan er sú eftir rýni á úttektinni að bætt verði við 100% stöðu á skurðstofu og 40% stöðu á svæfingu.
Stöðurnar verða auglýstar á næstu dögum ásamt þeim stöðum sem losna þar á næstu mánuðum.
- Framkvæmdastjóri hjúkrunar.
Umsóknarfrestur rann út mánudaginn 18. mars s.l. Umsóknir voru 8 talsins og verða þær sendar til stöðunefndar sem metur hæfi umsækjenda. Ekki liggur fyrir nú hve langan tíma það tekur.
RM fjallaði um stöðu mála á starfsstöðum.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:55
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.