Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 3. apríl 2019 kl. 9:00 á Akranesi.

 

Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.

 

Dagskrá.

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar.

Fundargerðir frá 20. mars 2019 og 27. mars 2019 voru lagðar fram og samþykktar.

  1. Biðlistaaðgerðir – skjöl

Lagt fram bréf frá Heilbrigðisráðuneytinu frá 19. mars 2019 þars sem fram kemur að HVE sé falið að framkvæma 70 biðlistaaðgerðir á mjöðm eða hné og 29 valdar aðgerðir á grindarbotnslíffærum kvenna / brotnám legs. Þá lagði JFJ fram samantekt um biðlistaaðgerðir árið 2018.

Á árinu 2018 voru gerðar 53 liðskiptaaðgerðir til viðbótar almennri áætlun og heildarfjöldi liðskiptaaðgerða var 163, fleiri en útlit var fyrir, þar sem dró úr liðskiptaaðgerðum fyrrihluta ársins vegna fjarveru skurðlæknis. Það er farin að sjást jákvæð þróun í styttingu biðlista eftir liðskiptaaðgerðum. Frá hausti 2018 hefur legutími styttist eftir breytingu sem gerð var á meðferð eftir aðgerð og verkjalyfjagjöf.

Tilteknum völdum aðgerðum vegna brottnámi legs var fjölgað um 29 umfram almenna áætlun. Nú eru 42 sjúklingur á biðlista, í febrúar 2018 voru 48 á biðlista og í febrúar 2016 voru 78 sjúklingar. Á þessu sést þróun í rétta átt en það bætist alltaf jafn og þétt á biðlistann yfir árið m.a. vegna beiðna frá læknum utan HVE.

  1. Stjórnendafundur 10. apríl – Undirbúningur.

Rætt um fyrirhugaðan stjórendafund þann 10. apríl n.k. Alls voru 38 aðilar boðnir, 27 hafa þegar staðfest þátttöku.

  1. Gjafir frá Lions

Lionsklúbbur Akranes færði HVE eftirtaldar gjafir þann 3. apríl 2019.

Gjörgæsluvaktari að gerð Monitor B650

Tvo Stryker Prime 1105 sjúklingabekki

Heildarverðmæti gjafanna eru 3,9 m.kr.

Framkvæmdastjórn og Björn Gunnarsson yfirlæknir svæfingadeildar veittu gjöfunum viðtöku í móttöku sem höfð var fyrir meðlimi klúbbsins og færði klúbbnum bestu þakkir fyrri stuðninginn.

  1. Vinna við ársskýrslu 2018.

Rætt um ársskýrslu ársins 2018.  Fram kom að nú styttist í lokafrágang skýrslunnar.

  1. Starfsemi sumarsins.

Rætt um starfsemi sumarsins.

Á Akranesi er samþykkt að sameina B- og C-deild tímabilið 15. júní til og með 17. ágúst 2019 og stefnt er að draga úr starfsemi skurðstofu frá 1. júní til 24. ágúst 2019.

Í Stykkishólmi hefur gengið mjög illa að manna í afleysingar í sumar og mögulega verður því niðurstaðan sú að legudeildinni verður lokað.

Á Hvammstanga hefur gengið ágætlega að manna í sumar og sama má segja um Hólmavík.  Enn er unnið að afleysingum í Borgarnesi, Búðardal, Ólafsvík og Grundarfirði.

  1. Bréf frá hjúkrunarfræðingum á handlækningadeild.
  1. Mannauðsmál.

 

  • Heilsugæslulæknar og sérnámsstöður

Fram kom að ein umsókn hafi komið um sérnámsstöður lækna á hvorn stað í Borgarnesi og á Akranesi.

Ekki hafa komið umsóknir um stöður heilsugæslulækna á fyrrnefndum stöðum.

  • Framkvæmdastjóri hjúkrunar.

Rætt um umsóknir um stöðu framkvæmdastjóra hjúkrunar og samþykkt var að fá utanaðkomandi aðila til að taka viðtöl við umsækjendur með fulltrúum framkvæmdastjórnar.

  • Deildarstjóri kvennadeildar.

Rætt um stöðu deildarstjóra kvennadeildar á Akranesi, en þrír sóttu um stöðunna.

Hrafnhildur Ólafsdóttir, Jóhanna Ólafsdóttir og Katrín Sif Sigurgeirsdóttir.

 

  • Starfsmannafundir

Samþykkt að hafa starfsmannafundi á Snæfellsnesi þann 30. apríl n.k.  Þar verði líka starfsmaður sem hætt hefur vegna aldurs kvaddur.

  • Fundur með fulltrúum Öryggismiðstöðvarinnar.

Fundur verður með fulltrúum Öryggismiðstöðvarinnar um öryggishnappa eða búnað fyrir ákveðna starfsmenn HVE nú í dag.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:15

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.