Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn miðvikudaginn 25. september 2019 kl. 9:00 á Akranesi.

 

Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura Björk Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.

 

Dagskrá.

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar.

Fundargerð frá 18. september lögð fram og samþykkt.

  1. Breyting á lögum um heilbrigðisþjónustu. 

Lögð fram drög að frumvarpi til breytinga á lögum um heilbrigðisþjónustu frá heilbrigðisráðherra.

Fjallað um málefnið.

 

  1. Tilmæli vegna málasafns – erindi Þjóðskjalasafna Íslands.

Lagt fram bréf frá Þjóðskjalasafni Íslands frá 17. september 2019 um tilmæli vegna málasafns- og skráningar mála hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands.

JFJ mun setja sig í samband við Þjóðskjalasafnið og fá frekari upplýsingar.

Svæðisfulltrúar og mannauðsstjóri koma til fundar kl. 10:00.

 

Mættir: Ásthildur E. Erlingsdóttir, Berit Sveinbjörnsdóttir, Hrefna Frímannsdóttir, Jóhann Björn Arngrímsson, Aldís Olga Jóhannesdóttir og Vilborg Lárusdóttir mannauðsstjóri.

 

  1. Starfsemin í sumar.

Lagðar fram samantektir frá svæðisfulltrúum um starfið í sumar og þau fóru yfir efnið. ÞBH fjallað og um sumarið á Akranesi.

 

  1. Fjárhagsleg málefni og rekstraráætlun ársins 2020.

ÁÁ lagði fram og fjallaði um fjárhagsleg málefni fyrir tímabilið janúar til ágúst í heild og fyrir hverja starfsstöð.  Rætt lítillega um rekstraráætlun ársins 2020 og frumvarp til fjárlaga.

Umræða var um atriði sem geta tekið breytingum til hagræðingar, en fram kom að skv. frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2020 gera stjórnendur ráð fyrir að vöntun verði að lágmarki 150 m.kr., þá er ekki tekið tillit til tækjakaupa.

Rætt var um aðhald í yfirvinnu eða að ekki verði kallað út nema hluta úr vöktum.

 

  1. Starfsáætlun og tenging við Heilbrigðisstefnu.

JFJ fór yfir starfsáætlun HVE og tengingu við heilbrigðisstefnu.

  1. Fyrirhuguð stjórnendafræðsla. VL og ÞBH fjölluðu um fyrirhugaða stjórnendafræðslu þann 27. og 28. nóvember í Borgarnesi. Ráðgjafafyrirtækið HVAN mun stýra fræðslunni eftir hádegi báða dagana en stofnunin verður með eigin dagskrá fyrir hádegi báða dagana, annar dagurinn verður helgaður Oracle kerfunum.

Þær óskuðu eftir því við fundarmenn að þeir myndu hugsa um mál sem gætu verið praktískt að fjalla um á þessum fundi. Lagt er upp með að hafa þennan fund til að efla stjórnendur og samhæfa.  Dagskrá verður send út fljótlega.

 

  1. Jafnréttisáætlun og jafnréttisstefna og staða vinnu við jafnlaunastefnu.

VL fjallaði um jafnréttisáætlun og jafnréttisstefnu ásamt stöðu vinnu við jafnlaunastefnuna.

 

  1. Verklagsreglur til kynningar, kvörtun vegna eineltis, viðbrögð við ofbeldi og viðbrögð þegar grunur er um lyfjamisnotkun/áfengisneyslu.

VL og ÞBH fjölluðu um verklagsreglur og breytingar sem hafa verið gerðar á þeim.

Reglurnar verða skoðar og lagðar fram á næsta fundi.

 

  1. Önnur mál.

Fram kom í máli Vilborgar að nú væri samstarf hafið við skóla á svæðinu um kynningar á heilbrigðistengdu námi.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 12:50

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.