Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn HVE, miðvikudaginn 9. október 2019 kl. 9:00 á Akranesi.

 

Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura Björk Hreinsdóttir, Linda Kristjánsdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.

 

Dagskrá.

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar.

Fundargerð frá 25. september lögð fram og samþykkt.

 

  1. Undirbúningur rekstraráætlunar 2020 og stefnumótun til þriggja ára.

Fjallað um undirbúning rekstraráætlunar 2020 og stefnumótun til þriggja ára. Lagt fram sniðmát og leiðbeiningar frá HBR sem nota á við gerða stefnumótunar árin 2020 til 2024. Skila þarf stefnumótuninni og áætluninni þann 1. nóvember n.k.  Farið verður yfir stefnumótunina á næsta fundi.

Rætt um rekstur og rekstrarspá út árið.

 

  1. Samantekt á skipulagi endurhæfingar hjá heilbrigðisstofnunum, erindi frá HRN.

Lagt fram erindi frá heilbrigðisráðuneytinu dags. 8. október 2019 um skipulag endurhæfingar á Íslandi. Þar er óskað er eftir upplýsingum um rekstur og starfsemi endurhæfingar á HVE.

 

  1. Biðdeild, fyrirsjáanleg lok verkefnis.

Rætt um fyrirsjáanleg lok biðdeildarverkefnisins sem hefur verið rekið hér frá mars 2017.  Gert er ráð fyrir að deildin loki endanlega í mars 2020.  Lokunin verður væntanlega gerð í áföngum í tengslum við opnun hjúkrunarheimilis á Sléttuvegi í Reykjavík. Fjallað var um mönnunina á deildinni.

 

  1. Stjórnendafundur í heilsugæslu 2. október sl.

LK fjallað um stjórnendafund í heilsugæslu sem haldinn var þann 2. október s.l.

 

  1. Fjarheilbrigðisþjónusta, upplýsingar um fyrirhugað tilraunaverkefni.

JFJ fjallaði um fjarheilbrigðsþjónustu, fengist hefur ein lína í gegnum heilsuveru til þess að byrja á tilraunarverkefni þar sem samskipti munu fara fram í gegnum Sögu og heilsuveru.  Stefnt er verkefnið nái yfir sálfræðiviðtöl við börn.

 

  1. Afhending gjafa miðvikudaginn 23. október n.k. 17:30. 

Fram kom að þann 23. október n.k. kl. 17:30 munu Hollvinasamtökin afhenta 12 rúm, gert er ráð fyrir að fulltrúar gefenda, Hollvinasamtakanna og starfsmanna munu verða við afhendinguna.

 

  1. Mannauðsmál.
  2. Beiðni um námsleyfi
  3. Gjaldskrármálefni.
  4. Hvíldarákvæði.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:40

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.