Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 12. júní 219 kl. 9:00 á Akranesi.

 

Mættir:  Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.

 

Dagskrá

  1. Samþykkt síðustu tveggja fundargerða.

Fundargerðir frá 15. maí og 29. maí 2019 lagðar fram og samþykktar.

  1. Rekstrarmálefni.

ÁÁ fjallaði um rekstur vegna tímabilsins janúar til og með apríl.  Fram kom að rekstur væri jákvæður um 24 m.kr. þetta tímabil eða um 1,4%.  Aðalástæðan er sú að húsaleigan hefur ekki hækkað í samræmi við áætlanir þar um, sú hækkun mun koma inn þegar líður á árið.

  1. Lok tilraunarverkefnis um styttingu vinnuvikunnar á lyflækningadeild.

Fjallað um lok tilraunaverkefnis um styttingu vinnuvikunnar á lyflækningadeild sem stóð yfir tímabilið 1. september 2018 til 31. maí 2019.  Von er á skýrslu um niðurstöðu verkefnisins.  Fram kom að starfsmenn væru ánægðir með þetta fyrirkomulag.

  1. Fundur með heilbrigðisráðuneyti þann 19. júní um liðskiptaaðgerðir.

Farið yfir undirbúning vegna fundar með heilbrigðsráðuneytinu hér vegna hugmynda um aukinn fjölda liðskiptiaðgerða á Akranesi.

Samþykkt að farið verði sérstaklega yfir málefið kl. 13:30 nú í dag.

  1. Helstu verkefni Þróunarmiðstöðvarinnar – bréf frá heilbrigðisráðuneytinu til upplýsinga.

Lagt fram bréf heilbrigðisráðuneytis dags. 13. maí 2019 um helstu verkefni Þróunarmiðstöðvarinnar.

  1. Heilsugæslan á Snæfellsnesi – umræða.

Rætt um heilsugæsluna á Snæfellsnesi.

Þá var umræða um nýtt reikni- og greiðslulíkan fyrir heilsugæslustöðvar, t.d. hvort það henti að færa fjármuni á milli starfsstöðva hjá HVE.

  1. Mannauðsmál.
    1. Uppsögn lyfjafræðings.

Sandra Steingrímsdóttir sem verið hefur í fæðingarorlofi hefur sagt upp starfi sínu frá og með næstu mánaðarmótum.   Auglýst verður hið fyrsta eftir lyfjafræðingi.

  1. Mönnun á Snæfellsnesi frá haustinu.

Fjallað um mönnun á Snæfellsnesi í sumar, en erfiðlega hefur gengið að fá hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða til starfa á svæðinu.

  1. Mönnun og afleysingar nú í sumar.

Rætt um afleysingar almennt nú í sumar.

  1. Eftir sumarfrí
  2. Rætt um fyrirhugaða fundi að loknu sumarleyfi.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:10

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.