Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 15. maí 2019 kl. 9:00 á Akranesi.

 

Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Rósa Marinósdóttir, Linda Kristjánsdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.   Þá sat Vilborg Lárusdóttur fundinn.

 

Dagskrá

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar.

Fundargerð frá 8. maí 2019 var lögð fram og samþykkt.

  1. Starfsáætlun 2019 2021.

Farið yfir áhersluatriði eftir fundinn á Hamri og þau unnin áfram til frekari úrvinnslu.

Samþykkt að stefna á að skipta starfsáætlun í 5 svið, þ.e. heilsugsælsvið, sjúkrasvið, hjúkrunarsvið, mannauðssvið og rekstrarsvið.

  1. Niðurstaða vinnuhóps um heilsugæsluþjónustu á Snæfellsnesi.

RM og LK kynntu og lögðu fram niðurstöðu vinnuhóps um heilsugæsluþjónustu á Snæfellsnesi.

Framkvæmdastjórn þakkar hópnum fyrir góða vinnu, unnið verður frekar að málinu.  Fundað verður með sveitarstjórnum svæðanna í síðari hluta ágúst.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 12:20

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.