Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn og svæðisfulltrúum, miðvikudaginn 27. mars 2019 kl. 10:00 á Akranesi.
Mættir: Jóhanna F Jóhannesdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson, Ásgeir Ásgeirsson, Linda Kristjánsdóttir, Hrefna Frímannsdóttir, Jóhann Björn Arngrímsson, Aldís Olga Jóhannesdóttir og Vilborg Lárusdóttir.
Dagskrá
- Fréttir frá vorfundi LH
Fjallað var um vorfund Landsambands Heilbrigðisstofnana sem haldin var á Húsavík daganna 21. og 22. apríl. JFJ fór aðeins yfir erindi sem haldið var á fundinum sem fjallaði um streitu, kvíða og kulnun.
- Umsækjendur um stöðu framkvæmdastjóra hjúkrunar
Umsóknarfrestur um stöðu framkvæmdastjóra hjúkrunar HVE rann út þann 18. mars s.l. Alls sóttu átta um stöðunna. Umsóknum hefur verið skilað til stöðunefndar sem metur hæfi.
Eftirtaldir sóttu um:
- Baldvina Ýr Hafsteinsdóttir
- Helga Atladóttir
- Hulda Gestsdóttir
- Níní Jónasdóttir
- Ólína Ingibjörg Gunnarsdóttir
- Ólöf Petrína Alfreðsdóttir Anderson
- Rabie Adel
- Þura Björk Hreinsdóttir
- Fjármálaáætlun 2020 – 2024
JFJ fjallaði um og lagði fram tillögu til þingsályktunar fyrir fjármálaáætlun vegna áranna 2020 til 2024.
- Fundur á Hótel Hamri 10. apríl
Rætt um skipulag og dagskrá fundar með stjórnendum þann 10. apríl 2019 á Hótel Hamri.
Dagskráin er eftirfarandi:
9:30 Setning.
9:45 Megináherslur 2019 – 2021 (Mannauður. Rekstur. Þjónusta. Öryggi og gæði)
12:00 Hádegishlé
13:00 Áætlun um gæðaþróun. Hrefna Þengilsdóttir yfirlæknir og Sigríður Egilsdóttir hjúkrunarfræðingur og verkefnisstjóri frá embætti landlæknis koma á fundinn.
14:15 Samantekt
14:45 Megináherslur málefnasviða 2019 – 2021 (Heilsugæslusvið. Hjúkrunarsvið. Sjúkrasvið)
- Skipurit HVE
Fjallað um drög og unnið að skipurit HVE. Rammi skipurits samþykktur.
- Önnur mál.
Vilborg fjallaði um jafnlaunavottun og starfsmatskerfi.
- Gæðastyrkur.
JFJ kynnti að síðast liðinn fimmtudag veitti Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra styrki til fimm gæðaverkefna í heilbrigðisþjónustu. Eitt þeirra verkefna sem fékk styrk er samstarfsverkefni sálfræðiþjónustu á HVE og HSA sem felst í þýðingu á gagnreyndri HAM meðferðarhandbók fyrir kvíðin börn og foreldra þeirra.
- Mislingafaraldur
Í upphafi fundar var rætt um mislingafaraldurinn og hvernig hafi gengið hjá HVE á þessum tíma. Fram kom að almenn ánægja væri með samskipti og viðbrögð við sóttvarnarlækni og aðra aðila.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 12:05
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.