Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 6. nóvember 2019, kl. 9:00 á Akranesi.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura Björk Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.
Dagskrá
- Samþykkt síðust fundargerðar.
Fundargerð frá 25. október 2019 lögð fram og samþykkt.
- Rekstraráætlun og stefnuskjal 2020
Rætt um og farið yfir rekstraráætlun og stefnuskjal fyrir árið 2020.
- Niðurstaða útboðs á röntgentæki fyrir myndgreiningadeild.
Niðurstaða er komin í útboð á röntgentækjum fyrir myndgreiningardeild. Tilboð bárust frá þremur aðilum. Hæstu heildareinkunn fær tæki frá Helthco. Fram kom að kæruferli tilboða væru 20 dagar frá 6. nóvember að telja.
- Styrkir til gæðaverkefna í heilbrigðisþjónustu.
Lagt fram erindi frá heilbrigðisráðuneytinu um styrk til gæðaverkefna.
Tilgangur styrkjanna er að stuðla að umbótum, nýbreytni og auknum gæðum í heilbrigðisþjónustunni.
Að þessu sinni er sérstök áhersla lögð á verkefni sem eru í samræmi við heilbrigðisstefnu til 2030 og/eða tengjast innleiðingu áætlunar Embættis landlæknis um gæðaþróun í heilbrigðisþjónustu 2019–2030. Umsóknarfrestur er til 18. nóvember næstkomandi.
- Mannauðsmál
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:30
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.