Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 4. desember 2019 kl. 9:00 á Akranesi.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura Björk Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson, Rósa Marinósdóttir, Linda Kristjánsdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar
Fundargerð frá 13. nóvember 2019 lögð fram og samþykkt.
- Að loknum stjórnendadögum
Fjallað um stjórnendadaga sem haldnir voru 27. og 28. nóvember s.l. Fram kom að almennt þykja þessir dagar hafa tekist vel. Rætt var um hvað beri að gera í framhaldi af þessum dögum.
- Ársáætlun 2019
Rætt um ársáætlun HVE fyrir árið 2019. Áætlunin var send miðvikudaginn 20. nóvember 2019. Fram kom í umræðum að áætlunin er mjög knöpp og gera þarf átak í lækkun launakostnaðar, sérstaklega með tilliti til yfirvinnu og veikindafjarvista.
- Mannauðsmál
- ÞBH fjallaði um mönnun ljósmæðra á kvennadeild.
- Rætt um lokun biðdeildarinnar.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 9:50.
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.