Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 8. janúar 2020 kl. 9:00 á Akranesi.

 

Mættir: Jóhanna F Jóhannesdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.  Þura Björk Hreinsdóttir er í orlofi.

Dagskrá.

Í upphafi fundar minntust fundarmenn Guðmundu Wíum heilbrigðisgagnafræðings í Ólafsvík sem lést þann 2. janúar 2019.

 

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar.

Fundargerð frá 11. desember 2019 lögð fram og samþykkt.

 

  1. Horft um öxl.

JFJ fjallaði um liðið ár.

 

  1. Fjármál og rekstur.

Fjallað um fjármál og reksturs síðast liðins árs og núverandi árs.

 

  1. Fjármögnun myndgreiningar og sýnarannsókna í heilbrigðiskerfinu.

Lögð fram samantekt um myndgreiningar- og sýnarannsóknir í heilbrigðiskerfinu. Fundur verður haldinn í dag um með ráðuneytinu og fleiri stofnunum.

ÁÁ mun sitja fundinn og er lagt til að leggja áherslur á eftirfarandi þætti:

  • Myndgreiningar, sérstaklega sneiðmyndatækið.
  • Rannsóknir, endurnýjun samninga m.v. aukningu á þjónustu.

 

  1. Framvinda skoðunar á varaafli.

Fjallað um framvindu mála vegna skoðunar á varaafli.  Nú liggur fyrir lokaathugun á þörf og búnaði fyrir Akranes, fyrirliggjandi eru tilboð fyrir vél og rafhlöður á skurðdeild, kvennadeild og rannsóknadeild.  Þá er jafnframt unnið því að setja upp vél á Hvammstanga.  Hólmavík og Stykkishólmur eru tengdir varaafli, að sinni er umræðan um staði sem ekki eru með legudeildir ekki hafin.  Stefnt er að því að panta búnaðinn á allra næstu dögum.

 

  1. Biðdeild HVE Akranesi

Lögð fram samantekt JFJ frá 2. janúar 2020 um rekstur tímabundinna biðrýma á HVE Akranesi.  En vorið 2017 samþykkti framkvæmdastjórn að taka að sér tímabundinn rekstur 15 biðrýma fyrir sjúklinga með gilt færni- og heilsumat sem biðu eftir varanlegri dvöl á hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu.

Upprunalega átti þetta verkefni að standa í tvö ár en var síðan framlengt út árið 2019 og síðan fram í mars 2020.  En eins og fram kemur í samantektinni þá reynist nauðsynlegt að loka fyrir innlagnir frá áramótum. Enda er mönnun deildarinnar nú komin niður fyrir viðmið.

 

  1. Samantekt um fjölda útkalla sjúkrabíla frá Gísla Björnssyni

Lögð fram samantekt um fjölda útkalla sjúkrabíla frá Gísla Björnssyni deildarstjóra sjúkraflutninga.  Akstur bílana nemur 232 þús. km. á síðasta ári.

  1. Áfallateymi HVE Akranesi – skipunarbréf

Lögð fram skipunarbréf í áfallateymi HVE til næstu tveggja ára, dags. 8. janúar 2012.

Eftirtaldir aðilar eru skipaðir í nefndina.

  • Íris Björg Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur heilsugæslu, forsvarsmaður teymisins
  • Jóhannes Bergsveinsson, yfirlæknir heilsugæslu
  • Jóna Björk Sigurjónsdóttir, hjúkrunarfræðingur lyflækningadeild
  • Rún Halldórsdóttir, svæfingalæknir
  • Salóme Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur handlækningadeild
  • Sigurður Már Sigmarsson, sjúkraflutningsmaður
  • Sólberg Fannar Sólbjartsson, tölvumaður

 

  1. Sýkingavarnarnefnd HVE- skipunarbréf

Lögð fram skipunarbréf í sýkingarvarnarnefnd HVE til næstu tveggja ára, dags. 8. janúar 2020.

Eftirtaldir aðilar eru skipaðir í nefndina:

  • Guðrún Hróðmarsdóttir, hjúkrunarfræðingur, formaður
  • Anna Þóra Þorgilsdóttir, hjúkrunarfræðingur
  • Ingi Karl Reynisson, læknir
  • Anna Signý Árnadóttir, ræstingastjóri
  1. Mannauðsmál

10.1     Aðstoðarlæknar.

ÞB sagði að búið væri að skipuleggja ráðningu aðstoðarlækna allt árið 2020 og til og með júní 2021.

10.2     Staða iðjuþjálfa.

            Staðan verður auglýst nú í vikunni.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:55

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.