Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 22. janúar 2020 kl. 9:00 á Akranesi.
Mættir: Jóhanna F Jóhannesdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson og Þura Björk Hreinsdóttir Ásgeir Ásgeirsson er í orlofi.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar.
Fundargerð frá 8. Janúar 2020 lögð fram og samþykkt.
- Fundur með velferðarnefnd 15.jan. sl.
Rætt um fund sem framkvæmdastjórn HVE var boðuð á hjá velferðarnefnd Alþingis. Nefndin boðaði allar heilbrigðisstofnanir til stuttra funda sama daginn þar sem stjórnendur svöruð fyrirspurnum nefndarmanna.
JFJ greindi frá fundinum.
Framkvæmdastjórn svaraði spurningum frá nefndarmönnum um ýmislegt varðandi rekstur HVE. Tími framkvæmdastjórnar til að svara spurningum var of stuttur.
- Endurskoðun viðbragðsáætlunar HVE
Viðbragsáætlun er síðan 2018 flest stenst tímann en nauðsynlegt að endurskoða kaflann „Rofinn rekstur“ í ljósi óveðursins í des 2019.
Viðbragðsnefnd er byrjuð að endurskoða viðbragsáætlunina og búið að boða annan fund í lok jan 20.
- Mannauðsmál
Starfsmannamál Grundarfirði rætt um stöðu mála þar.
- Önnur mál
ÞBH ræddi um framkvæmdir á skurðstofu HVE Akranesi. JFJ ætlar að hafa samband við framkvæmdasýslu
ríkisins varðandi það.
Einnig rætt um framkvæmdir á A og B deildum í sumar. Fundur um framkvæmdirnar 29. jan 2020 kl. 15.00.
Fyrirhugaður kynningarfundur EL um innleiðingu með eftirliti hjá rekstaraðilum. 6. feb. 2020.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:30 Rósa Marinósdóttir ritaði fundargerð.