Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn miðvikudaginn 5. febrúar 2020 kl. 9:00 á Akranesi.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura Björk Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar.
Fundargerð frá 22. janúar 2020 lögð fram og samþykkt.
Þá var farið yfir fundargerð með samskiptafulltrúum frá 29. janúar 2020.
- Staða krónaveirufaraldursins og undirbúningur innan þjónustusvæðis HVE.
Fjallað um stöðu krónaverufaraldursins og undirbúning innan þjónustusvæðis HVE þess vegna.
ÞB nefndi að hægt hafi gengið að fá senda maska og hlífðarfatnað. Fjallaði um kröfur sóttvarnarlæknis um húsnæði fyrir sótthví ef til kemur. Nú liggur fyrir að virkjað hefur verið notkun á hóteli í Ásbrú á Suðurnesjum, framkvæmdastjórn telur eðlilegast að það húsnæði verði notað fyrir stærstan hluta landsins.
Gefin verða út samræmd svör á spjaldi fyrir stafsmenn HVE til að svara fyrirspurnum.
Þá kom fram að nú í dag væru tæplega 25 þúsund manns smitaðir á heiminum, þar af 24.349 í Kína. 493 hafa látist og 921 hafa læknast.
- Erindi frá umboðsmanni barna – Staða á innleiðingu Barnasáttmálans.
Lagt fram erindi frá umboðsmanni barna um stöðu á innleiðingu Barnasáttmálans. Þar er óskað eftir að stofnanir geri grein fyrir þeim ráðstöfunum sem gripið hefur verið til og sem miða að því að innleiða Barnasáttmálann í starfseminni með því að svara könnun.
Framkvæmdastjórn svaraði könnuninni sameiginlega á fundinum.
- Jafnlaunavottun – staða.
Fjallað um stöðu á jafnlaunavottun. Fram kom að vottun sem átti að fara fram í gær, þann 4. febrúar, hafi fallið niður vegna veikinda vottunaraðila. Stefnt er að fá vottun nú 17. febrúar.
- Drög að nýrri reglugerð um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi heilbrigðisstarfsmanna frá öðrum EES-ríkjum eða Sviss – lagt fram.
Lögð fram drög að nýrri reglugerð um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi heilbrigðisstarfsmanna frá öðrum EES-ríkjum eða Sviss.
- Drög að reglugerð um breytingu á ýmsum reglugerðum um starfsleyfi og sérfræðileyfi heilbrigðisstétta – lagt fram.
Lögð fram drög að nýrri reglugerð um breytingu á ýmsum reglugerðum um starfsleyfi og sérfræðileyfi heilbrigðisstétta.
- Nemar á HVE
ÞBH fjallaði um stöðu mála um hvernig við erum í stakk búinn að taka við nemum. Fram kom hjá henni að t.d. hjúkrunarnemar væru forviða yfir aðstöðu og vinnu- og verklagi tengt skráningu og aðstöðu. Nefnir sérstaklega lyfjafyrirmæli og fyrirmæli lækna, tækjabúnað og aðstöðu.
Ljóst er að gera þarf átak í þessum efnum, en það virðist vera að spítalinn hér sitji eftir í þessum málum. Skoða þarf hvort að hægt sé að gera samninga við Landspítalann um aðgang að þessum kerfum svipað og gert hefur verið gagnvart rannsóknakerfi og röntgenkerfi.
- Mannauðsmál:
- Stykkishólmur
ÞBH ræddi um erfiðleika í mönnum þar núna og undanfarið.
- Heilsugæslan Akranesi – Mæðravernd og skólahjúkrun
Fram kom í máli ÞBH að hún telji nauðsynlegt að fjölga um 20% í mæðravernd á Akranesi, þ.e. úr 80% í 100%, m.a. vegna tilmæla um að auka eftirlit.
Rætt ítarlega um málefnið.
- Hólmavík
Rætt um mönnun hjúkrunarfræðinga í Hólmavík.
- Iðjuþjálfi á Akranesi.
Fram kom hjá ÞB að komið hafa 4 umsóknir í stöðu iðjuþjálfa.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:30
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.