Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 12. febrúar 2020 kl. 9:00 á Akranesi.

 

Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Linda Kristjánsdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.

 

Dagskrá.

 

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar.

Fundargerð frá 5. febrúar 2020 lögð fram og samþykkt.

 

  1. Upplýsingar af stöðufundi í heilbrigðisráðuneytinu 10. febrúar

JFJ fjallaði um stöðufund sem hún og ÁÁ sóttu í heilbrigðisráðuneytinu sem haldin var þann 10. febrúar s.l.  Helstu málefni fundarins voru eftirfarandi:

  • Viðbragðsáætlun vegna kórónafaraldurs.
  • Starfsáætlun stofnunar fyrir árið 2020.
  • Mælikvarða/r eftirfarandi lykilþátta:
    • Starfsfólk
    • Gæði
    • Þjónustuframleiðsla (ACG/DRG)
  • Önnur mál

Farið yfir glærur og helstu málefni fundarins.

 

  1. Viðbragðsáætlun og staða undirbúnings vegna kórónaveirufaraldursins.

Fjallað um viðbragðsáætlun og stöðu undirbúnings vegna kórónaveirufaraldursins, COVID-19.

Umræða var um birgðir á hlífðarbúningum og möskum. Mikil umræða var um málefnið og viðbrögð.

Ítrekað að útbúa spjöld fyrir starfsmenn um stöðluð svör um málefnið.

ÞB. fer í frí þann 3. mars og verður í þrjár vikur, LK mun taka við hlutverki hans gagnvart sóttvörnum á meðan.

Þá var rætt um viðbrögð ef stór fjöldi starfsmanna verður frá störfum vegna mögulegra veikinda.

 

  1. Staða framkvæmda á HVE Akranesi.

Rætt um fyrirhugaðar framkvæmdir og tímasetningar á Akranesi, sérstaklega tengt A- og B-deild, skurðstofum og sjúkrabílaskýli.

 

  1. Mannauðsmál:

5.1       Staða iðjuþjálfa.

Rætt um stöðu iðjuþjálfa, stefnt er að því að hefja viðræður við alla umsækjendur nú í vikunni.

5.2       Lokun biðdeildar.

Rætt um lokun biðdeildar, fram kom að við lokun deildarinnar munu síðustu sjúklingarnir á biðdeild fara á Sléttuveg þann 2. mars n.k.  Gera má ráð fyrir að það verði um 7 eða 8 sjúklingar.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:15

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.