Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 11. mars 2020 á Akranesi.

 

Mættir: Jóhanna F Jóhannesdóttir, Þura B Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.

 

Dagskrá.

 

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar.

Fundargerð frá 12. febrúar 2020 lögð fram og samþykkt.

  1. COVID-19 m.a.
    a. Viðbragðsáætlun og helstu verkefni næstu daga.

Fjallað um stöðu mála hjá HVE, svo sem vegna öryggis- og hlífðarbúninga ásamt öðrum birgðum.   Fjallað almennt um viðbrögð og viðbragðsstjórn. Samþykkt að viðbragðstjórn stjórni og samhæfi viðbrögð í samráði við sóttvarnarlækna HVE og yfirvöld. Í viðbragðsstjórn eru Jóhanna F Jóhannesdóttir, Þura Björk Hreinsdóttir, Gísli Björnsson og Jóhannes Bergsveinsson í fjarveru Þóris Bergmundssonar. Guðrún Hróðmarsdóttir formaður sýkingavarnarnefndar verður einnig sett í hópinn.

Samskipta og upplýsingasíða fyrir starfsmann verður á workplace.

Fjallað um hvað aðrar stofnanir og sveitarfélög gera.

Rætt um rekstur mötuneyta á stöðunum, sótthreinsun á snertiflötum og fleira.

Fjallað um sýnatökur á starfsstöðvum HVE og flutning þeirra til Landsspítala.

b. Sérstakur veikindaréttur og utanlandsferðir starfsmanna

Fjallað um veikindarétt og endurgreiðslukostnað vegna námskostnaða. Fram kom að ef læknir hætti við námsferð sem áður var ákveðin þá mun HVE endurgreiða mögulegan kostnað. Starfsmenn fá laun hliðstætt veikindarétti á meðan það er í sótthví.  Þá munu þeir starfsmenn geta unnið ýmis verk heiman frá sér, t.d. svarað símtölum og fleira.

Rætt um hvað gert er gagnvart starfsmönnum sem hafa skipulagt ferðir til útlanda.

  • Endurgreitt verður fyrir ferðir sem falla niður á vegum stofnunarinnar.
  • Fari starfsmenn í ferðir á bannsvæði þá fær viðkomandi ekki greitt laun í sóttkví.
  • Laun eru greidd í sóttkví ef ferðin er farin áður en svæðið er skilgreint sem hættusvæði.

Samþykkt að farið verði eftir viðmiðum og reglum Landsspítala í þessum efnum.

 

  1. Tilkynning frá bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar.

Lagt fram bréf bæjarstjórans í Stykkishólmi frá 14. febrúar 2020 vegna fjölda ríkisstarfsmanna.

  1. Erindi frá sveitastjórn Dalabyggðar.

Lagt fram erindi sveitarsjóra Dalabyggðar frá 13. febrúar 2020.

  1. Framkvæmdir og tækjabúnaður.

Rætt um framkvæmdir og endurbætur.  M.a. kom fram að hluti breytinga í Stykkishólmi færast til ársins 2021.

  1. Mannauðsmál.
    • Staða yfirhjúkrunarfræðings í Hólmavík.

Rætt um stöðu mála, en yfirhjúkrunarfræðingur þar hættir þann 27. mars n.k. og ekki hefur tekist að manna í stöðinni.  Auglýst verður aftur með nýrri auglýsingu.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:40

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.