Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 18. mars 2020 kl. 9:00 á Akranesi í gegnum Teams.

 

Mættir: Jóhanna F Jóhannesdóttir, Þura B Hreinsdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.

Þórir Bergmundsson er í orlofi.

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar.

Fundargerð frá 11. mars 2020 lögð fram og samþykkt.

  1. COVID-19 m.a.
    a. Framvinda frá síðasta fundi og útfærsla samkomubanns innan stofnunar.

Fjallað um stöðu mála og aðstæður sem skapast hafa á Hvammstanga.

 b. Fundir viðbragðsstjórnar.

Rætt um fundi viðbragðsstjórnar, samþykkt að halda sama tíma áfram, þ.e. kl. 12:30.

c. Skurðaðgerðir og valstarfsemi

Rætt um skurðaðgerðir, valstarfsemi og rekstur háls- og bakdeildar.

Farið yfir mögulegar leiðir í því að draga úr aðgerðum og móttöku.  Fram kom að gera má ráð fyrir að slíkur samdráttur verði næstu mánuði.

Umræða var um hvort beina ætti tilmælum til starfsmanna að þeir lágmarki öll tengsl við aðra, bæði í starfi og heima fyrir.   Rætt hvort verja eigi lækna og aðra í móttöku með möskum og hönskum alltaf.  Augljóslega þurfa læknar á sjúkrasviði að færa sig meira í símamóttöku eins og heilsugæslan hefur gert.

Fjallað um mögulegt skipulag á skiptum starfsmanna á deildum til að slíta í sundur.  Nú þegar hefur slík vinna farið af stað.  ÞBH mun skoða skipulagið betur.

Geðteymið býður nú upp á símaþjónustu fyrir þá sem það þurfa.

d. Húsnæði undir sóttkví

Fengist hefur staðfest hjá ráðneyti að HVE þarf að sjá alfarið um taka á leigu húsnæði, fengist hafa drög að leigusamningum þess vegna.

Rætt um mögulega aukningu í þrifum, málið verður skoðað.

  1. Fyrirspurn frá Landspítala vegna liðskiptaaðgerða.

JFJ ræddi um fyrirspurn Margrétar Guðjónsdóttur forstöðumanns skurðlækningaþjónustu  á Landsspítala vegna liðskiptaaðgerða.  En þar kom fram að stjórnendur Landsspítala lítist vel á áform um fjölgun liðskipataðgerða á Akranesi og vilji funda með HVE um mögulega samvinnu þegar um hægist.

Fram kom að fjöldi liðskiptaaðgerða hér að Akranesi eru nú 54 talsins.  Stefnt er að 220 aðgerðum þetta árið miðað við núverandi skurðstofuaðstöðu.

  1. Mannauðsmál

Rætt almennt um mannauðsmál á þessum tímum.

Umræða var um reglubundnar upplýsingar til starfsmanna, svo sem á workplace og fleira.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:30

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.