Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 1. apríl 2020 kl. 13:30 á Akranesi um teams.
Mættir: Jóhanna F Jóhannesdóttir, Þura B Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.
Dagskrá.
- Fundargerð síðasta fundar.
Fundargerð frá 25. mars lögð fram og samþykkt.
- Covid–19, staðan í dag.
ÞB fór yfir stöðuna. Á svæði HVE eru 58 smitaðir, 8 bættust við á Hvammstanga og 2 í Borgarnesi. Staðan er því að þannig að 7 eru á Akranesi, 19 í Borgarnesi, 3 í Stykkishólmi, 1 í Grundarfirði, 1 á Reykhólum og 27 á Hvammstanga. Einn sjúklingur af svæðinu er á Landspítala. Rætt um málið.
Sagði að hann væri reglulega í samabandi við allar starfsstöðvar, en þó gengi erfiðlega að heyra frá Ólafsvík. Rætt um birtingu upplýsinga um smit eftir heilsugæslum /póstnúmerum.
Nú hefur þetta verið gefið upp aftur.
Rætt um stöðu birgða, fram kom að nú væri ástandið viðunandi.
Fjallað um læknamönnun um páskana. Nauðsynlegt getur reynst að hafa kláran hjúkrunarfræðing fyrir sýnatökur með lækni. Þá var umræða um mönnun lækna um páskana.
Umræða var um fólk í sóttkví í sumarhúsum á svæðinu, t.d. hver sér um aðföng fyrir viðkomandi.
Fram kom að mun minna væri að gera á heilsugæslunni um þessar mundir. Sama má segja um aðra starfsemi.
Lögð fram tímalína um viðbrögð á tímabili covid.
Fram kom að búið væri að loka öllum inngöngum á Akranesi alltaf.
- Beiðni um tækjakaup frá kvennadeild.
Lagt fram tilboð frá Medor vegna Philips Avalon dokku með þráðlausum nemum fyrir fæðingamónitora að fjárhæð 1,7 m.kr.
Rætt um málið, en fram kom að nú á árinu hafi verið keyptur búnaður fyrir um 14 m.kr.
Í dag komu 3 rúm frá Hollvinasamtökunum af þeim 4 sem þau gefa núna. Samþykkt að eitt rúm fari á Hólmavík, enda fékkst sérstakt framlag frá samfélaginu þar.
- Mannauðsmál á tíma covid-19
4.1 Orlofsmál og sóttkví.
Rætt um orlof og sóttkví. Komi starfsmenn fyrr úr orlofi og byrja svo í sóttkví þá er það skýrt að fyrir fram ákveðið orlof sé klárað fyrst og síðan fer fólk í sóttkví. Annað gildir ef fólk vinnur sannarlega heima hjá sér í sóttkvínni ef því verður við komið.
4.2 Vinna hjá HVE og Landspítala.
Fjallað um tilfærslur starfsmanna á milli þessara staða ef þeir eru í störfum á báðum stöðum. Fram kom að meta þurfi hvert tilfelli fyrir sig.
4.3 Rekstur.
Rætt um kostnað vegna mannahalds og fleira vegna covid. Fram koma séstakar áhyggjur af mönnun á C-deild, en þar hafa margir starfsmenn farið í sóttkví og farið í veikindi vegna annara orsaka. Leggja þarf mat á stöðuna fram í tímann með tilliti til þess fjölda sem skráður er hjá mæðravernd hverju sinni. Fram kom að leita ætti eftir liðsinni fyrrverandi ljósmæðra hér um að vera í bakvarðarsveit.
- Annað.
Fjallað um upplýsingagjöf til íbúa.
Samþykkt að opna facebooksíður fyrir hverja og eina heilsugæslu á svæðinu og síðan eina fyrir stofnuna í heild. Sem sagt facebook síða ein og átta.
Tvær umsóknir hafa borist um stöðu deildarstjóra hjúkrunardeildar á Hvammstanga. Frestur rann út í dag.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 14:45
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.