Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 22. apríl 2020 kl. 9:00 á Akranesi um teams.

 

Mættir: Jóhanna F Jóhannesdóttir, Þura  Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.

 

Dagskrá.

 

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar.

Fundargerð frá 8. apríl 2020 lögð fram og samþykkt.

  1. Covid-19 staðan í dag og væntanlegar breytingar frá 4. maí.

Fjallað var um stöðuna í dag, en fram kom að eitt nýtt smit hafi komið upp á svæði HVE á mánudaginn.  Staðan er því eftirfarandi á starfssvæðinu.  Tekin voru 9 sýni þann 21. apríl vegna þessa einstaklings, beðið er eftir niðurstöðu.

Staðan Miðvikudagur 22.4.2020.
Heilsugæslustöð Sóttkví Greindir
Akranes 11 12
Borgarnes 3 22
Búðardalur 1 0
Grundarfjörður 3 1
Ólafsvík 0 1
Stykkishólmur 4 5
Vesturland samtals 22 41
Hólmavík 0 0
Hvammstangi 1 32
Samtals 23 73

Þann 21. apríl voru 1.778 staðfest smit á landinu öllu, 351 í einangrun, 25 á sjúkrahúsi og þarf af 5 á gjörgæslu. 1.417 hafa náð bata og 1.026 eru í sóttkví, 18.253 hafa lokið sóttkví.  Tekin hafa verið 43.831 sýni eða af 12% íbúa.

Rætt um helstu breytingar sem verða 4. maí næstkomandi, JFJ fór yfir umræðu meðal forstjóra um breytingar eftir 4. maí, svo sem almenna takmörkun sjúklinga á biðstofur og móttökur og að leggja þarf áfram frekari áherslu á smitvarnir.

JFJ lagði fram reglur Landspítala um helstu aðgerðir eftir 4. maí.  Þar kemur m.a. fram að heimsóknarbann verði í meginatriðum með sama hætti og verið hefur. Starfsmenn mega fara á milli starfseininga. Göngudeild verður opin í meira mæli en tveggja metra reglan sé virt. Miða skal við 50 manna og tveggja metra reglu við kennslu og fundi.   Aðstandandi má vera viðstaddur allt fæðingaferlið.

Þá lagði hún fram yfirlit um helstu breytingar frá hjúkrunarheimilum.  Þar kom m.a. fram að halda þarf skrá yfir allar heimsóknir og aðeins væri heimilt að einn gestur kæmi á hverjum tíma.  Ekki má dvelja í sameiginlegum rýmum.

Rætt um dagdvöl, heimahjúkrun og fleiri atriði.

Fjallað um valaðgerðir og forgangsröðun sjúklinga í þeim efnum ef farið verður af stað frá 4. maí.   Umræða var m.a. um hvort í fyrstu yrði aðeins önnur skurðstofan virk.   Rætt um göngudeildarþjónustu og biðstofur sjúklinga.  Áfram verðu viðhaft sama eða svipað skipulag og er núna.

Fram kom að líklega væru ákveðnar takmarkanir áfram í það minnst fram að sumarleyfistíma. Á meðan smit greinast þá er illa hægt að slaka á í þessum efnum.

Á vef stjórnarráðs Íslands þann 14. apríl  kemur eftirfarandi fram:

Fram hefur komið hjá landlækni eftir þessa tilkynningu þá verði stefnt að því að taka upp valkvæðar skurðaðgerðir og aðrar ífarandi aðgerðir eftir 4. maí.

Fjöldamörk samkomubanns miðast við 50 einstaklinga í stað 20 áður. Reglur um tveggja metra fjarlægð haldast óbreyttar.

Skólastarf í leik- og grunnskólum verður með eðlilegum hætti.

Í framhalds- og háskólum gildir meginreglan um hámark 50 einstaklinga í sama rými.

Ýmis þjónusta: Hárgreiðslustofur, nuddstofur, sjúkraþjálfun, snyrtistofur, söfn og sambærileg starfsemi geta hafið starfsemi en halda skal 2 metra fjarlægð milli viðskiptavina eins og kostur er.

Heilbrigðisþjónusta: Öll heilbrigðisstarfsemi sem ekki felur í sér valkvæðar skurðaðgerðir eða aðrar ífarandi aðgerðir verður heimil. Tannlækningar verða einnig heimilar.

Skipulagt íþróttastarf barna á leik- og grunnskólaaldri verður heimilt utandyra með eftirfarandi takmörkunum:

  • Ekki fleiri en 50 einstaklingar verða saman í hóp.
  • Halda skal tveggja metra fjarlægð eftir því sem það er unnt, einkum hjá eldri börnum.

Annað skipulagt íþróttastarf er heimilt utandyra með eftirfarandi takmörkunum:

  • Ekki fleiri en fjórir einstaklingar æfa eða leika saman.
  • Snertingar eru óheimilar og halda skal tveimur metrum á milli einstaklinga.
  • Notkun á sameiginlegum búnaði skal haldið í lágmarki en annars skal sótthreinsa hann á milli notkunar.

Nokkur atriði sem haldast óbreytt:

  • Undanþágur fyrir efnahagslega mikilvæg fyrirtæki verða óbreyttar.
  • Líkt og hingað til verður heimilt að taka á móti 100 einstaklingum í matvöruverslunum og lyfjaverslunum hverju sinni að uppfylltum tilteknum skilyrðum.
  • Sundlaugar og líkamsræktarstöðvar verða áfram lokaðar.
  • Reglur um skemmtistaði, krár, spilasali og svipaða starfsemi verða óbreyttar og slíkir staðir því áfram lokaðir.
  • Fyrirmæli landlæknis frá 23. mars sl. um valkvæðar skurðaðgerðir eða aðrar ífarandi 

aðgerðir haldast óbreytt.

  1. Röntgentæki á myndgreiningardeild og tækjakaup í forgangi.

Röntgentækið á Akranesi hefur verið tekið í notkun, komið hafa upp smávægileg vandamál, svo sem ein sía er gölluð en hún verður endurnýjuð.  Þá er unnið er að loka frágangi húsnæðis vegna breytingana.

Lagt fram yfirlit yfir tækja- og búnaðarkaup fyrir árið 2019 og tækjalista fyrir árið 2020. Fram kemur að keypt voru tæki fyrir 42 m.kr.  Þá bárust gjafatæki að verðmæti 19 m.kr.  Á árinu 2020 er nú þegar búið að fjárfesta í tækjum fyrir tæpar 20 m.kr. Beiðnir eru allt að 60 m.kr. á árinu.

Þá kom fram að von væri á fleiri rúmum frá Hollvinasamtökum og að Lions á Akranesi muni afhenta rannsóknadeild skilvindu að gjöf.

  1. Framkvæmdir og endurbætur á húsnæði.

JFJ fjallaði um fyrirhugaðar framkvæmdir.  Útboð vegna A- og B-deildar eru í vinnslu, en birting hefur dregist lítillega. Svo virðist sem skipulag annara verkefna hafi farið á hold á þessum covid tímum.  Framkvæmdir við sjúkrabílaskýlis á Akranesi virðast ganga ágætlega, en verklok eiga að vera í júlí.

  1. Gæðahandbók HVE.

Fjallað um uppfærða gæðahandbók HVE en búið er að fela framkvæmdastjóra hjúkrunar umsjá bókarinnar.   ÞBH fór yfir málefnið, hún leggur til að sett verði upp þriggja manna ritstjórn.  Rætt um hvernig ný gæðahandbók ætti að verða uppbyggð, nú er henni skipt upp í 24 kafla. ÞBH mun velja aðila í ritnefnd, reynt verður að virkja sem flesta yfirmenn til að setja inn efni.

  1. Birting starfsleyfaskrár yfir heilbrigðisstarfmenn með gilt starfsleyfi hér á landi – frá EL.

Rætt um starfsleyfaskrá embættis landlæknis.  En þar er hægt að sækja upplýsingar um starfsfleyfi fólks, á Íslandi eru starfandi 35 heilbrigðisstéttir með lögverndað starfssvið.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:25

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.