Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 29. apríl 2020 kl. 9:00 um Tems.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar.
Fundargerð frá 22. apríl lögð fram og samþykkt.
- Fjárhagsleg málefni.
ÁÁ lagði fram yfirlit yfir rekstur janúar til mars 2020 samanborið við áætlun og 2019. Samkvæmt yfirliti er rekstur í jafnvægi og jákvæð niðurstaða nemur 17 m.kr. eða 1,2% af tekjum. Þá var farið var yfir yfirlit uppgjörs á heilsugæslunni í samræmi við áætlanir um dreifingu fjármagns miðað við reiknilíkan HBR. Nauðsynlegt er að fara vel yfir gögnin en ljóst er samkvæmt þessum göngum eru það aðeins Akranes og Borgarnes sem falla ágætlega að áætlunninni. Aðrir staðir eiga langt í land, en allt að 60% frávik getur verið á þessum áætlunum og raunkostnaði.
Áætlað er að fundur verði í ráðuneytinu 15. maí n.k. Ákveðið er að framkvæmdastjórn fari vel yfir málið þann 6. maí n.k. í framhaldi af almennum framkvæmdastjórnarfundi.
- Starfsemisupplýsingar.
Lagðar fram starfsemisupplýsingar tímabilið janúar til mars.
- Covid 19 – Breytingar frá 4. maí.
Fjallað um breytingar á skipulagi frá 4. maí.
Tilslakanir á samkomubanni frá 4.maí.
Viðbragðsstjórn HVE fór á fundi sínum þann 27. apríl yfir reglur sem gilt hafa í samkomubanni síðustu vikna og leggur fram endurskoðaðar reglur sem munu gilda frá 4.maí n.k. Sumt helst óbreytt en annað breytist lítillega. Þetta eru ekki stór skref því mikilvægt er að fara að öllu með gát og ekki kvika frá neinu í sambandi við sýkingavarnir. Komi til þess að Almannavarnir aflétti samkomubanni hraðar en áætlað er það munum við endurskoða okkar viðmið.
Reglur sem gilda HVE frá 4. maí:
Starfsmenn
- Tveggja metra nálægðartakmörkunin verður áfram í gildi á vinnutíma.
- Sama hópaskipting starfsmanna og verið hefur síðustu vikurnar, ráðgert að endurskoða það frá 18. maí.
- Starfsmenn mega vinna á fleiri en einni starfsstöð/stofnun og farið verður að taka aftur við nemum í klínískt starfsnám.
- Fjölmennir fundir verða ekki haldnir í maí og áfram stuðst við fjarfundi t.d. með Teams hugbúnaðinum.
- Heimilt verður að halda fámenna fundi eftir 18. maí svo fremi að hægt sé að virða tveggja metra regluna á fundarstofum.
- Áfram gildir sama fyrirkomulag í matsal, stólum ekki fjölgað.
- Gestir starfsmanna, iðnaðarmenn og verktakar geta ekki notað mötuneyti.
Heilsugæslan
- Allar komur verða bókaðar af lækni eða hjúkrunarfræðingi eftir símtal og skimun.
- Lokað fyrir netbókanir þar til tveggja metra reglan verður afnumin.
- Unnið að því að afgreiðsla geti bókað í tíma frá 4.maí en skimi með spurningum áður, öndunarfæraeinkenni og eða COVID grunur þá símtal á hjúkrunarfræðing eða lækni.
- Ekki verður opnað fyrir síðdegisvakt og helgarmóttöku á Akranesi fyrr en eftir að tveggja metra reglan hefur verið afnumin. Þeir sem telja sig þurfa á þjónustu vaktlæknis á Akranesi kl. 16 – 18 er bent á að hringja í síma 432-1000.
- Konur koma án maka/stuðningsaðila í bókaða tíma í sónar og meðgönguvernd eins og undanfarnar vikur.
- Mælst er til að aðstandendur komi ekki með skjólstæðingum í viðtöl og skoðanir nema nauðsynlegt sé.
- Halda áfram að skima alla skjólstæðinga með skimunarspurningum fyrir komu eins og verið hefur.
Biðstofur fyrir heilsugæslu, göngudeildir og slysa- /aðgerðastofu
- Móttökur verði skipulagðar þannig að ekki komi til hópamyndunar á biðstofum.
- Allir sjúklingar verði skimaðir fyrir komu með skimunarspurningum.
- Viðhafa skal tveggja metra regluna milli stóla á biðstofu og tryggja að því sé fylgt eftir, stólum ekki fjölgað.
- Fylgdarmenn komi ekki með nema þegar öðru verður ekki við komið og þá aðeins einn.
- Færri viðtalstímar verða til að byrja með. Lengja þarf tíma milli tímabókana til að koma í veg fyrir að sjúklingar séu of nálægt hvor öðrum t.d. eftir speglanir, aðgerðir og skoðanir hjá sérfræðingum.
- Rannsóknadeild heldur áfram að skrá í tímabókanir, ekki opnað fyrir það að koma inn og taka númer á biðstofu.
- Opnað verður fyrir ambulant sjúkraþjálfun frá 4. maí.
Sjúkrahús og hjúkrunardeildir
- Heimsóknarbann á legu- og hjúkrunardeildir HVE verður með sama hætti og verið hefur frá 6. mars, þ.e. heimsóknir eru einungis leyfðar í sérstökum tilvikum með leyfi starfsmanna viðkomandi deilda. Ekki er áætlað að rýmka fyrir heimsóknir fyrr en eftir 18.maí.
- Halda áfram að skima alla sjúklinga með skimunarspurningum fyrir komu eins og verið hefur.
- Sjúklingum er ekki heimilt að fara í helgarleyfi.
- Skima aðstandendur sem fá leyfi til að koma með skimunarspurningum.
- Opnað verður fyrir valskurðaðgerðir 4. maí. Ein skurðstofa opin en opnunartími verður lengdur. Starfsmenn vinna áfram í tveimur teymum, annað teymið vinnur fyrrihluta dags og hitt teymið eftir hádegi fram á kvöld. Aðgerðum verði forgangsraðað þannig að þeim sem hafa brýnasta þörf verði sinnt fyrst.
- Háls og bakdeild opnar 4. maí með sama fyrirkomulagi og var í upphafi samkomubanns.
Kvennadeild HVE
- Kona í fæðingu má einungis hafa með sér einn aðstandanda /stuðningsaðila.
- Aðstandandi/stuðningsaðili má koma á deildina þegar ljósmóðir hefur staðfest að kona sé sannarlega í fæðingu þ.e. þegar líður að fæðingu barnsins.
- Aðstandandi/stuðningsaðili fylgir konu ekki í gangsetningu fyrr en fæðing er hafin og getur verið með henni fram yfir fæðingu barns og hefur möguleika á að dvelja með konu og barni um tíma eftir fæðingu (tíminn eftir fæðingu er til skoðunar).
- Öll viðvera aðstandandanda er háð því að hann hafi engin einkenni um að vera veikur og mikilvægt að hann haldi tveggja metra fjarlægðarmörk frá starfsfólki.
- Aðstandandi má ekki fara inn á önnur rými á deildinni og þarf að gæta að fyllstu sóttvörnum meðan á dvöl stendur.
- Eins og áður, ef fæðing hefur gengið eðlilega fyrir sig og móður og barni heilsast vel er gert ráð fyrir útskrift af deild eins fljótt og auðið er.
- Aðstandandi konu sem þarf að gangast undir keisaraskurð má ekki fylgja henni skurðstofu (óbreytt).
- Aðstandandi getur ekki fylgt konu í mæðravernd eða við ómskoðanir og ambulanta á deild.
Farið var yfir reglur um viðveru aðstandana á fæðingadeild SAK frá 4. Maí. Funda þarf sérstaklega með kvennadeildinni um málefnið, gert kl. 13:00 í dag. Í megin atriðum eru fundarmenn sammála um að nota SAK leiðina, þó beri að taka tillit til frávika á milli staða.
Fjallað var um tilslakanir á heimsóknum, aðgengi á dagvist og fleira á hjúkrunardeildum HVE. JFJ rætt drög að reglum við yfirlækninn á Hvammstanga og JBA í Hólmavík.
- Texti í ritið ÍSLAND 2020, atvinnuþættir og menning. http://www.isat.is
Lagður fram texti og myndir í HVE í ritið ÍSLAND 2020.
- Þátttaka í verkefnum árið 2020 í þriðju heilbrigðisáætlun ESB – lagt fram.
Lagt fram yfirlit yfir þátttöku í helstu verkefnum í þriðju heilbrigðisáætlun ESB.
- Skipulag framkvæmdastjórnarfunda.
JFJ lagði fram tillögu um skipulag framkvæmdastjórnarfunda, þannig verði mannauðsstjóri á fundum tvisvar í mánuði, einu sinni í mánuði með framkvæmdastjórn og einu sinni í mánuði þegar þegar svæðisfulltrúar funda með framkvæmdastjórn. Rætt um málið og samþykkt.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:55.
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.