Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 13. maí 2020 kl. 9:00 á Akranesi um Teams.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson, Rósa Marinósdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar.
Fundargerð frá 6. maí lögð fram og samþykkt.
- COVID-19 – staðan, skimanir á Snæfellsnesi og tilslakanir samkomubanns.
Fjallað um stöðu Covid-19. Fram kom hjá ÞB að einn hafi verið að greinast hér á Vesturlandi.
Á landsvísu eru 1.802 með staðfest smit, 16 í einangrun, 1 á sjúkrahúsi og 697 í sóttkví, alls hafa 19.701 lokið sóttkví. 1.776 hafa náð bata en 10 hafa látist. Tekin hafa verið 54.791 sýni.
Lögð fram og rædd tilkynning framkvæmdastjórnar um tilslakanir á samkomubanni frá 4. maí, aðallega var rætt um hvort frekari tilslakanir sem boðaðar voru miðað við 18. maí, svo sem hólfaskiptingi starfsmanna, opnun skurðdeildar, heimsóknir til sjúklinga mun verða óbreyttur og fleira. Samþykkt að skoða síðar í dag m.a. hvernig SAK og Landspítali stefna. Farið sérstaklega yfir komur sjúklinga í húsið, sérstaklega með tilliti til sjúklinga í biðstofum, þar þarf að lágmarka fjöldann eins og hægt er.
Nánar verður fjallað um málefnið á fundi viðbragðsstjórnar í hádeginu í dag.
- Framkvæmdir
- Staða útboðs á endurbótum C-húss HVE á Akranesi
Fram kom að útboðið hafi ekki enn verðið gefið út. Þessar tafir munu geta sett fyrirhugaðar framkvæmdir í sumar í uppnám.
- Endurnýjun stjórnstöðvar brunaviðvörunarkerfisins á HVE Akranesi
Fram koma að endurnýja á stjórnstöð brunaviðvörunarkerfis á HVE Akranesi, Ríkiseignir sjá um það mál.
- Glaðloftscentrall á HVE Akranesi
Nauðsynlegt er að skipta um glaðloftcentral á Akranesi. Kostnaður við þessa lagfæringu er rúmlega 2 m.kr.
- Sjúkrabýlaskýli – framvinda
JFJ sagði að verktaki hafi fengið 2 mánaða lengingu á skilum verksins, m.a. vegna tafa hjá Orkuveitunni og vegna Covid. Eiga því að skila verkinu í september, getur þó orðið fyrr.
- Rýmingaráætlanir
Rætt um rýmingaráætlanir HVE ef eldur kemur upp. Nauðsynlegt er að endurvinna rýmingaráætlanir á öllum stöðum HVE. Lögð var fram skýrsla VSI frá 2010 um brunatæknilega hönnun HVE Akranesi sem unnin var fyrir Ríkiseignir þá.
- Blóðskilun – framhald umræðu
Rætt um málefnið, JFJ mun svara erindi sjúklings vegna málsins. Unnið verður að málinu áfram, ÞBH er falið að leiða málið ásamt Þorvaldi Magnússyni lækni.
- Niðurstöður þjónustukönnunar fyrir þjónustu heilsugæslunnar á landsvísu
Lagðar fram og fjallað um niðurstöður þjónustukönnunnar fyrir þjónustu heilsugæslunnar á landsvísu sem unninn var í desember 2019 og janúar 2020. Fram kom að almennt væru sjúklingar ánægðari á höfðuborgarsvæðinu en á landsbyggðinni.
Umræða var um könnunina almennt. Aðeins voru 173 sem svöruðu könnunni, þar af 119 á höfuðborgarsvæðinu og 54 á landsbyggðinni.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:25
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.