Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 20. maí 2020 kl. 9:30 á Akranesi um Team.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson, Rósa Marinósdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar.
Fundargerð frá 13. maí 2020 lögð fram og samþykkt.
- Gerð áhættumats fyrir heilbrigðiskerfið vegna mögulegrar komu ferðamanna í ljósi COVID-19 faraldursins.
Rætt um gerð áhættumats fyrir heilbrigðiskerfið vegna mögulegarar komu ferðamanna þegar landið á að opna þann 15. júní 2020. Matið þarf að miðast við að 20 þúsund ferðamenn kæmu til landsins í júlí og allt að 100 þúsund í ágúst og framvegis. Fara þarf yfir málefnið og setja á sérstakan fund, skil matsins þurfa að liggja fyrir þann 30. maí n.k. Stefnt að fundi n.k. miðvikudag kl. 9:00 með framkvæmdastjórn og yfirlæknum á heilsugæslustöðvum.
- Svar við erindi frá Dalabyggð þar sem óskað eftir afstöðu HVE til þess að taka yfir rekstur Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Silfurtúns.
JFJ lagði fram svar við erindi frá Dalabyggð. Framkvæmdastjórn HVE hefur farið yfir erindið og telur engar forsendur fyrir því að stofnunin taki yfir rekstur Silfurtúns. JFJ hvetur Dalabyggð til að leita fremur samstarfs við önnur dvalar- og hjúkrunarheimili.
Fundi slitið kl. 9:55.
Umsjónarmenn koma á fundinn kl. 10:00
Berit Sveinbjörnsdóttir, Jóhann Arngrímsson, Hrefna Frímannsdóttir, Ásthildur E. Erlingsdóttir, Aldís Olga Jóhannesdóttir og Vilborg Lárusdóttir,
- Ársreikningur HVE 2019, niðurstaða til kynningar.
ÁÁ lagði fram og fjallaði um ársreikning HVE 2019, fram koma að rekstur hafi verið nokkuð þungur mestan part ársins 2019 og stefndi í nokkurn hallarekstur í árslok. En í lok ársins fékkst svo aukið rekstrarframlag frá heilbrigðisráðuneytinu að fjárhæð 106 m.kr. sem gerði það að verkum að í árslok var reksturinn jákvæður um 42,9 m.kr. eða 0,8% af tekjum, 79,8 m.kr. þegar tekið er tillit til fjárfestingaframlags. Niðurstaða hvers sviðs án fjárfestingaframlags er að heilsugæslusvið er með jákvæða niðustöður sem nemur 14,5 m.kr., sjúkrasvið er jákvætt um sem nemur 65 m.kr. en hjúkrunarsvið skilar neikvæðri niðurstöðu um sem nemur 36 m.kr.
- Útgáfa ársskýrslu HVE 2019
Rósa Mýdal fór lítilega yfir efni ársskýrslunnar og JFJ kynnti frekar og sendi fundarmönnum.
- COVID-19 staðan í dag.
ÞB fjallaði um COVID-19 stöðuna eins og hún er í dag. Síðasta tilfelli á Vesturlandi greindist 12. maí, 18 eru í sóttkví. 6 erlendir ríkisborgarar eru í B-sóttkví. Fram kom hjá honum að ÍE hafi tekið 1.954 sýni á Vesturlandi, þar af um 736 á Akranesi og tæplega 700 í Borgarnesi, 295 í Ólafsvík, eitt reyndist vera jákvætt af öllum þessum fjölda.
Samkvæmt COVID.IS eru 3 í einangrun núna, 1.802 hafa smitast, enginn er á sjúkrahúsi. 727 eru í sóttkví, 20.103 hafa lokið sóttkví og 1.789 hafa náð bata. Tekin hafa verið 57.187 sýni.
Fram kom að á fundum ÞB með sóttvarnarlækni er gert ráð fyrir tilslökunum þann 25. maí, t.d. að fjöldi þeirra sem koma saman megi vera 200 og mögulega fjölgi í 500 nú í júní. Ræddi um komur ferðamanna, bæði með flugi og skemmtiferðaskipum. Stefnt er að því að allir ferðamenn verði skimaðir og á meðan sýni eru skoðuð hjá ÍE verða ferðamenn að halda sig í einangrun. Fram kom hjá ÞB að faraldurinn væri búinn núna, allavega í bili.
Rætt var um mögulegar breytingar hjá HVE, t.d. hvað varðar tilslakanir um heimsóknir aðstandenda og aðgengi að húsnæði HVE.
JBA fór yfir tillögur þeirra í Hólmavík varðandi tilslakanir þann 25. maí og 2. júní.
Þá kom fram hjá ÞBH að á legudeildum á Akranesi verði dregið úr almennum heimsóknum eftir tilslakanir, líklegast verði þeir festir á ákveðna tíma, t.d. opið á milli 15 og 17. Aðrar reglur munu þó gilda fyrir deyjandi og alvarlega sjúka. Fram kom að þetta hafi betri áhrif á sjúklinga að draga úr heimsóknum.
HF sagði að líklega færi Stykkishólmur milliveginn á milli Hólmavíkur og Akranes hvað varðar heimsóknir.
- Rýmingaráætlanir.
JFJ lagði fram erindi til eldvarnarfulltúra HVE vegna bréfs frá Ríkiseignum um að slökkvilið um allt land séu að herða á framkvæmd varðandi brunavarnir og nýjar áherslur samkvæmt reglugerð.
Þar kemur fram að leigusali ber m.a. ábyrgð á brunaöryggi bygginga eins og fyrirskrifað er í byggingarreglugerðum og leigutaki ber ábyrgð á eigin eldvörnum, rýmingaráætlun, flóttaleiðum og að starfsmenn kunni að nota slökkvibúnað. Unnið verður að gerð rýmingaáætlana á næstu vikum.
8. Mannauðsmál.
-
- Kynning á Bradfordkvarðanum – Vilborg.
VB kynnti Bradfordkvarðan. Kvarðinn er tæki til að halda utan um viðverustefnu og viðverusamtöl.
-
- Kynning á nýjum ramma fyrir starfsmannasamtöl.
VB fjallaði almennt um starfsmannasamtöl.
-
- Rafrænt eftirlit.
VB sagði frá rafrænu eftirliti starfsmanna, fram kom að bæta þurfi inn í ráðningarsamning ákvæði um rafrænt eftirlit og vöktum.
- Málefni starfsstöðva.
Hvammstangi: AOJ sagði að Halldór Hallgrímsson hafi komið í síðustu viku og farið yfir uppsetningu á vararafstöð nú í sumar. Sagði frá breytingum á dagvistun og heimahjúkrun.
Hólmavík: JBA fór yfir mannauðsmál. Nefndi að framkvæmdir við heilsugæsluna.
Búðardalur: JBA sagði að unnið verði að nýju brunavarnarkerfi í Búðardal.
Stykkishólmur: HF sagði allt gott að frétta í Hólminum, nánast búið að ráða í sumarafleysingar. Rætt um aðgengi sjúklinga eftir klukkan 16, sérstaklega vegna sérfræðilækna og tannlæknis. Sagði starfið vera að færast í eðlilegt horf aftur. Starfið á legudeild gengur vel. Ræddi um næstu framkvæmdir, en skipt verður um þak á þvotthúsinu.
Grundarfjörður: ÁEE þakkaði fyrir þurrkara, þvottavél og ísskáp, sagði starfið ganga vel og allt starf að færast í eðlilegt horf.
Ólafsvík: BS sagði að starfið gengi vel og tekist hafi að ráð í öll störf og afleysingu og kominn nýr vaktbíll.
Borgarnes: RM sagði að starfið væri gott þar líka, allar afleysingar gengið vel utan að ekki hafi tekist að ráða í allar stöður lækna. Nefndi breytt fyrirkomulag á blóðtökum, skipulagt í 4 manna slottum á morgnum.
Akranes: ÞBH sagði að beðið væri eftir framkvæmdum á legudeildum, ágætlega hefur gengið að ráða í afleysingar og sumarið líti almennt vel út hvað mönnun snertir.
ÞB sagði að mönnunarmál lækna væru ekki alveg frágengin, t.d. á Grundarfirði. Á Akranesi væri aðalega vandi með afleysingar á B-deild því afleysarar ætluðu að koma frá Svíþjóð. Önnur læknamönnun í ágættum farvegi.
Annað.
JFJ Áréttaði handþvott almennt, en það hafi sýnst sig á þessum covid tímum að dregið hafi verulega úr öðrum smitsjúkdómum.
Samþykkt að hafa stuttan fund með öllum þann 3. júní n.k.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:40
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.