Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 12. ágúst 2020 kl. 9:00 á Akranesi.

Mættir:          Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson, Rósa Marinósdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.

 

Dagskrá.

 

  1. Fundargerð frá 10. júní 2020.

Fundargerð frá 10. júní 2020 lögð fram og samþykkt.

 

  1. Farið yfir stöðuna og starfsemi síðustu vikna.

Fjallað um stöðuna núna og starfsemi síðustu vikna.  Umræða var um framkvæmdir.   Fjallað var um starfsemistölur fyrir 6 mánaða tímabil ásamt biðlistum.  Þá var fjallað um starfsemi deilda.  Umræða var um skipulag næsta sumars og skipulag.

Farið yfir mönnun og starfsemi á heilsugæslunum í sumar.

  1. Fjárhagsleg málefni.

ÁÁ lagði fram og fjallaði um rekstraryfirlit fyrir tímabilið janúar til júní 2020.  Samkvæmt bókhaldi er neikvæð rekstrarafkoma 122,7 m.kr., eða 4,5% af tekjum og hefur versnað verulega frá síðasta uppgjöri.   Fram kom í umræðu um málefnið að flestir liðir bókhalds væru á áætlun utan launakostnað, en laun eru um 118 m.kr. hærri en áætlun gerði ráð fyrir, þar af er um 67 m.kr. aukinn launakostnaður vegna Covid, þá má rekja ótilgreind frávik til hærri kjarasamninga en fjárlögð virðast hafa gert ráð fyrir.

Samþykkt að farið verði sérstaklega yfir mannahald á næstu 2 til 3 vikum vegna framúrkeyrslu launa.

  1. Forgangsmál og skipulag starfseminar vegna Covid 19 á komandi hausti / vetri.

Rætt um skipulag fyrir næsta haust og vetur vegna Covid.

Umræða var um hanska- og maskanotkun við umönnun sjúklinga á legudeildum, en fram kom að nokkurt misræmi væri á notkun á milli sjúkrahúsa.  Hér er notkun aðeins við fyrstu skimun /skoðun en á Landsspítala er notast við maska við alla umönnun.  Setja þarf fram endurskoðaðar verklagsreglur um notkun hlífðarbúnaðar á covidtímum. Þá voru umræður um heimsóknir og aðgengi að húsnæði almennt á næstu vikum og mánuðum.

Rætt um álag vegna seinni skimana í Borgarnesi og Stykkishólmi.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 12:00

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.