Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn miðvikudaginn 26. ágúst kl. 9:00 á Akranesi.

Mættir:  Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson og Ágeir Ásgeirsson.

 

Dagskrá.

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar.

Fundargerð frá 18. ágúst 2020 lögð fram og samþykkt.

  1. Framkvæmdir á HVE.
  • Framkvæmdir á C-húsi HVE Akranesi

Rætt um framkvæmdir í C-húsi á Akranesi.  Samþykkt að hafa hugarflugsfund og þarfagreiningu á húsnæðisþörf.

JFJ lagði fram tímáætlun til skoðunar vegna væntanlegra framkvæmda.

  • Húsnæði heilsugæslu HVE Akranesi

Farið yfir húsnæðismál heilsugæslunnar á Akranesi.   Fundað verður með yfirlækni og yfir hjúkrunarfræðingi vegna málsins.

  • Framkvæmdir við 2. áfanga endurbóta á HVE í Stykkishólmi

Farið yfir framkvæmdir í Stykkishólmi.

  1. Fjármögnunarlíkan heilsugæslunnar – mönnunarhluti módelsins

Fjallað um fjármögnunarlíkan heilsugæslunnar – mönnunarhluta.   Fundað verður með fulltrúum ráðuneytis kl. 13:00 í dag vegna líkansins.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl.  11:20

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.