Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 16. september 2020 kl. 9:00 á Akranesi.

Mættir:          Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson, Júlína Einarsdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.

 

Dagskrá.

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar.

Fundargerð frá 9. september lögð fram og samþykkt.

 

  1. Covid- 19 staðan

ÞB fjallaði um stöðuna varðandi Covid-19.   Fram kom hjá honum að nú væri búið að stytta sótthví í 7 daga með því skilyrði að fólk mæti í skimun og reynist sýni neikvæð lýkur sóttkvínni.  Staðan er góð hér á Vesturlandi, einn er í einangrun en hann mun losna á morgun.

Þá stendur til að fjölga stöðum á landinu sem koma að seinni skimun, þannig verður líka hægt að nota þann búnað, tölvur, sem fylgir til skráninga á skimun vegna einkenna.  Fara þarf yfir þá staði hjá HVE sem yrðu opnir fyrir þetta verkefni, en það liggur fyrir að opna þarf um helgar til að framkvæma þessa skimun.  Samþykkt að þessi skimun, þ.e. einkenna- og landamæraskimun verði á öllum stöðum á virkum dögum, og á öllum stöðum nema í Grundarfirði um helgar, gert er ráð fyrir að vakthafandi læknar taki verkefnið að sér á frídögum, enda hafa þeir séð um einkennaskimun til þessa.

 

  1. Framkvæmdir

JFJ fór yfir framkvæmdir og endurbætur á húsnæði hjá HVE.

Stykkishólmur

Ekki er komin niðurstaða í útboðinu varðandi Stykkishólm, en fyrirhugað var að halda fund með starfsfólki þar á morgun, fimmtudag.  Fundinum verður frestað ef niðurstaða verður ekki komin.   Skipuleggja þarf starfsemina á meðan á framkvæmdum stendur.

Akranes

Þá var fjallað sérstaklega um fund JFJ og ÁÁ með heilbrigðisráðuneyti og fulltrúum Ríkiseigna varðandi byggingu á nýrri skurðstofu á Akranesi á þriðjudaginn.  Farið var yfir hvernig þessi framkvæmd tóni við framkvæmdir á legurýmum og mögulega tímalínu framkvæmda.

Niðurstaða fundarinns var að Heilbrigðisráðuneytið mun senda Ríkiseignum erindi um að taka verkefnið að sér.  Þá verði stefnt að því að semja við þann verktaka sem er nú þegar að vinna að endurnýjun þaks að taka að sér að lyfta þakinu að auki.

 

  1. Betri vinnutími – staðan

JE fór yfir stöðuna um styttingu vinnuvikunar. Nú eru kosningar um leiðir á Akranesi, kynning á málefninu er farin af stað á öðrum stöðum.

Erindi mannauðsstjóra var komið inn á workplace.

Markmiðið með styttingu vinnuvikunnar er að bæta vinnustaðamenningu og nýtingu vinnutíma, auka skilvirkni, bæta gæði þjónustu, tryggja betur gagnkvæman sveigjanleika og stuðla þannig að bættum lífskjörum og samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs.

Vinnuhópurinn sem skipaður var af starfsfólki stofnunarinnar hefur lagt fram tvær tillögur að styttingu vinnuvikunnar. Starfsfólk innan hverrar deildar greiðir síðan atkvæði á milli neðangreindra tillagna, dagana 15. – 17. september. Útfærsla innan hverrar deildar fyrir sig getur síðan verið með mismunandi hætti en þó verður hún ekki einstaklingsbundin. Þegar niðurstöður innan allra deilda liggja fyrir, þarf hver deild að skila til okkar útfærslu að styttingu sem hentar bæði starfseminni og starfsfólkinu.

Áður en hver deild fyrir sig ákveður útfærslu er mikilvægt að skoða vinnulag og verkferla og greina þau verkefni sem starfsmenn sinna þar sem forsenda breytinganna er að starfsemi stofnunarinnar raskist ekki og þjónustan sé af sömu eða betri gæðum en áður.

Eftirfarandi eru tillögur vinnuhópsins:

Hámarks stytting:

Við hámarks styttingu er vinnuvikan stytt um allt að 4 klukkustundir á viku, úr 40 í 36 virkar stundir á viku. Náist samkomulag um hámarksstyttingu, þ.e um 4 klst. á viku, verður grein 3.1 um matar- og kaffitíma á dagvinnutímabili óvirk. Þá eru hefðbundin neysluhlé hluti af vinnutímanum og eru því ekki á forræði starfsmannsins þar sem skipulagið gerir ráð fyrir að samfella sé í vinnudeginum. Þetta þýðir auðvitað ekki að starfsmenn fái ekki að taka sér hlé til þess að ná sér í kaffibolla eða borða hádegismat en ekki er um formlegt hlé í skilningi kjarasamnings að ræða.

Lágmarks stytting:

Lágmarks stytting er 13 mínútur á dag eða 65 mínútur á viku. Við lágmarks styttingu haldast matar- og kaffitímar óbreyttir samkvæmt kjarasamningi.

 

Rætt ítarlega um málefnið.

Skoða þarf vinnutíma og skipulag þjónustu almennt á öllum starfsstöðvum.

 

  1. Mannauðsmál
    • Heimsókn læknanema.

ÞB fjallaði um heimsókn læknanema n.k. föstudag.  Móttakan verður með hefðbundnu sniði.

    • Sérnámsstaða á heilsugæslunni á Akranesi.

Nú á mánudag hóf nýr læknir störf sem sérnámslæknir á Akranesi.  Fram kom að þetta sé í fyrsta sinn sem sérnámslæknir kemur við störf þar.

    • Sálfræðingar og geðheilbrigðisþjónusta.

Rætt um þjónustu og mönnun sálfræðinga.   Þá hefur vímuvarnarfulltrúinn sagt hlutastarfi sínu lausu. Rætt var um hvort ráðið verði í sambærilega stöðu aftur eða nýtt í annað, t.d. geðhjúkrunarfræðinga.  Málið verður skoða vel í samráði við yfirmann þjónustunnar.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:20

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.