Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn og svæðisfulltrúum, miðvikudaginn 30. september 2020 kl. 10:00 um teams.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Þórir Bergumundsson, Rósa Marinósdóttir, Ásgeir Ásgeirsson, Júlína Einarsdóttir, Aldís Olga Jóhannesdóttir, Hrefna Frímannsdóttir, Jóhann Björn Arngrímsson, Elín Friðriksdóttir og Ásthildur E. Erlingsdóttir.
Dagskrá.
- Covid- staðan um svæðið.
ÞB fór yfir stöðu Covid á starfssvæðinu.
JFJ óskaði eftir að svæðisfulltrúar kynni vel fyrir öllum sínum starfsmönnum reglur og tilmæli sem birt hafa verið á workplace.
Reglunar eru eftirfarandi og taka gildi frá 30. september.
Á fundi viðbragðsstjórnar 29. september var ákveðið að endurskoða reglur sem gilt hafa um fjarlægðarmörk og notkun á andlitsgrímum meðal starfsmanna.
Ástæða er til að grípa til hertari aðgerða varðandi fjarlægðartakmörk og notkun á andlitsgrímum vegna hættu á smitum og mögulegum hópsýkingum innan stofnunarinnar sem gæti leitt til skerðingar á þjónustu.
- Tveggja metra reglan milli starfmanna og þegar þeir sinna sjúkingum tekur aftur gildi. Þetta gildir einnig um matar- og kaffitíma. Stjórnendur eininga bera ábyrgð á að skipuleggja matar- og kaffihlé starfsmanna þannig að tveggja metra reglan sé virt.
- Þar sem ekki er hægt að viðhafa tveggja metra regluna og þar sem starfsmenn vinna saman í litlum rýmum þarf að gera ráðstafanir til að færa þá í sundur.
- Nokun andlitsgríma verður gerð að skyldu í öllum rýmum. Aðeins tvær undantekningar eru frá grímuskyldu þ.e. á meðan matast er og þar sem starfsmenn starfa einir á skrifstofum.
- Það gildir áfram að starfsmenn fari ekki á aðrar deildir/einingar að nauðsynjalausu og dvelji ekki lengur en nauðsyn krefur í matsölum.
- Gæta þarf að ítrustu smitvörnum á sameiginlegum snertiflötum starfsmanna með áherslu á handhreinsun og sótthreinsun yfirborðsflata.
Þá er áréttað mikilvægi þess að vera á varðbergi ef starfsmenn fái einkenni sem bent geta til Covid, þá er mikilvægt að halda sig heima og hafa samband við heilsugæsluna.
Rætt var um aukna grímunotkun í stað þess að skipta upp starfsmönnum, fram kom að ein ástæðan fyrir því að ekki hafi verið gripið til þessa ráðs fyrr er sú að í vor og sumar voru birgðir mjög takmarkaðar á landsvísu.
Aldís fjallaði um stöðuna í Hvammstanga, fram kom að grímunotkun hafi verið lítil til þessa en auðvitað verði þetta tekið upp með nýjum tilmælum.
Ásthildur sagði að grímunotkun hafi verið tekin upp í Grundarfirði þegar smitin komu upp í Stykkishólmi. Sagði að þar væri passað vel upp á fjarlægð og þess háttar.
Elín sagði að í Ólafsvík væru fólk frekar aflokað og hafa tryggt fjarlægðarmörk, en tekin verði upp grímunotkun eftir nýjustu reglum. Sagði samfélagið í Ólafsvík almennt passa sig vel.
Jóhann Björn sagði að í Hólmavík væri almenn grímunotkun á heilsugæslunni. Grímur hafa ekki verið notaðar almennt á hjúkrunardeildinni. Hann mun brýna fyrir sínu samstarfsfólki að fara eftir reglunum sem gefnar voru út í gær.
Hrefna sagði að grímuskylda hafa verið í gangi í um vikutíma. Háls- og bakdeildin er lokuð þessa viku, í skoðun er hvort lokað verða í næstu viku. Rólegt er á legudeild og heilsugæslu þessa dagana. Ræddi um göngudeildarþjónustu, en fram kom hjá ÞB að ekki væri gert ráð fyrir takmörkunum á göngudeild en tryggja þurfi ítrustu smitgát.
Rósa sagði grímuskyldu vera í Borgarnesi og starfsmenn hafi tekið þessu vel. Þá hafi starfsmönnum hafi verið skipt í hópa í mat. Landamæraskimun hafi gengið ágætlega þó þetta sé nokkurt álag.
Umræða var um almennt um skimanir og fyrirkomulag.
2. Vinna við rekstraráætlun.
ÁÁ fjallaði um rekstraráætlun fyrir næsta ár. Vinna er hafin við áætlun en fram kom að áætlunarkerfið myndi opna þann 5. október n.k. Skil skv. tímalínu Fjársýslu til ráðuneytis væri 15. október en sú dagsetning tók mið af því að enda átti kerfið líka að opna 15. september skv. sömu tímalínu.
Ljóst er að eins og staðan er nú þá er launakostnaður að fara langt umfram áætlun. Unnið er að úttekt og endurskoðun mannahalds fyrir stofnunina alla.
Þá kom fram að við skil á ársáætlun fyrir þetta ár var bent á að hækkun milli ára væri ónóg. Fjárlagafrumvarp 2020 gerði ráð fyrir 5% hækkun milli fjárlaga milli ára en aðeins 2,3% hækkun m.v. endanlega fjárheimild ársins 2019. Launahækkanir sem náðu aftur til síðasta árs nema á bilinu 5% til 7% og augljóslega gengur þetta ekki upp m.v. 2,3% raunhækkun milli ára.
Ekki skal ráða í stöður sem losna án samráðs við yfirstjórn.
Ekki festa ráðningu hjá lausráðnum án samráðs við yfirstjórn.
Fara þarf vel yfir alla mönnun og skoða hvort hægt sé að draga úr mönnun.
Rætt um mönnunarmótel, fram kom að skv. fjármögnunarlíkani verði einhver vísir að módeli á heilsugæslusviði.
3. Betri vinnutími- staðan.
Júlína Einarsdóttir fjallaði um betri vinnutíma, sagði starfsmenn vera að vinna að tillögum varðandi útfærslu á styttingu. Fram kom að að unnið væri að upplýsingum varðandi möguleg kaffi- og matarhlé með tilliti til styttingar. Eins og þetta er lagt er upp þá verði í raun eina neysluhléð stuttur matartími í hádeginu, aðrir kaffitímar/hlé leggjast af ef hámarks stytting er valin. Viðmiðunardagsetning sem var 1. október hefur verið framlengdur til gildistíma, þ.e. 1. janúar.
Rætt var um stimplun í vinnustund, svokallaða uppsöfnun á mínútum. Ítreka þarf að ekki sé greitt fyrir meinta „mínútu“ yfirvinnu né sé mögulegt að „safna“ upp einhverjum mínútum til uppgjörs síðar.
Gert er ráð fyrir að betri vinnutími taki gildi í síðasta lagi þann 1. janúar 2021. Vinna er svo hafin við skipulagning varðandi betri vinnutíma fyrir vaktavinnustarfsmenn.
4. Fjármögnunarlíkan heilsugæslu
Fjallað um fjármögnunarlíkanið í heilsugæslu. Umræða var um fyrirkomulag á talningu samskipta, útfærslu og skráningu. Rætt um hvort eða hvenær almenn kynning færi fram fyrir þá starfsmenn sem þess þurfa. Passa þarf upp á að öll skráning séu með sama hætti á öllum stöðum. Þá var umræða um heimahjúkrun og sjúkraflutninga, en ekki er gert ráð fyrir þessum liðum innan líkans. JFJ og ÞBH munu skoða hvort hægt verði að setja inn heimahjúkrun.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:45
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.