Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 7. október 2020 kl. 9:00 um Teams.

Mættir:          Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.

 

Dagskrá.

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar.

Fundargerðir frá 16. september og 30. september lagðar fram og samþykktar.

  1. Gæðauppgjör 2019 – lagt fram og kynnt.

Lagt fram gæðauppgjör 2019 fyrir Embætti landlæknis.  JFJ fór yfir uppgjörið.

  1. COVID -19. Breytingar síðustu daga, flutningur sjúklinga frá Landspítala og vinnugleði.

Rætt um stöðuna í dag og síðustu daga. Ekki orðin stór breyting á tölum frá því í gær.  Í heild sinni eru 46 í sóttkví og 21 greindur.

Fram kom að búið væri að loka HVE á Akranesi og í Stykkishólmi.  Grímunotkun innan HVE er skylda.

Rætt um beiðni Landsspítala og ráðuneytis um að HVE tæki við sjúklingum frá Landsspítala.  Skoðað var að bæta við 4 rúmum á handlækningadeild og 2 rúmum á lyflækningadeild, eða 6 sjúklingum samtals.  Niðurstaðan er því sú að opna að nýju nokkur pláss á „biðdeildinni“. Þetta mun kalla á aukna mönnun um sem nemur 7 stöðugildum þennan tíma. Þura er að skoða að fá starfsmenn sem nýlega hafa látið af störfum. Stefnt að er opna rýmin í næstu viku.

Tekið verður yfirlit um fjölda þeirra sjúklinga sem almennt koma hingað frá Landsspítala.

Rætt var um móttöku nema.   Því verður haldið áfram, en með ítrustu sóttvörnum.

  • Verklagsreglur til skoðunar:Einelti, ofbeldi, kynferðisleg og kynbundin áreitni.  Lögð fram verklagsregla til endurskoðunar.   Stefnt að því á næsta fundi með svæðisfulltrúum.
  • Grunur um notkun áfengis og vímuefna

Lagt fram gæðaskjal um verklagsreglu, en þörf er á að ganga endanlega frá skjalinu.   Stefnt að því á næsta fundi með svæðisfulltrúum.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:15

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.