Fundur haldinn hjá framkvæmdastórn, miðvikudaginn 14. október 2020 kl. 9:00 um teams.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Þórir Bergmudsson, Rósa Marinósdóttir og Ásgeir Ásgeirsson. Júlíana Einarsdóttir kom til fundar kl. 10:00.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar.
Fundargerð frá 7. október 2020 lögð fram og samþykkt.
- COVID -19 staðan.
Fjallað að um stöðuna vegna Covid. Fram kom hjá ÞB að nú væru 18 í einangrun á starfsvæði HVE og 34 í sóttkví þann 13. október. Staðan er sú sama nú í morgun og hefur heldur skánað á okkar svæði síðustu daga. Á landsvísu eru nú 1.071 í einangrun og 1.752 í sóttkví, nú eru 22 á sjúkrahúsi og 3 á gjörgæslu. Innanlandssmit voru 83 í gær, ÞB sagði að þróunin væri nú að fara á verri veg á höfuðborgarsvæðinu sem er mikið áhyggjuefni. Nýgengi innanlandssmita er nú 253,9 talsins. Frá upphafi hafa greinst 3.668 smit.
ÞBH fjallaði um bráðabirgðadeildina sem opna átti í dag hjá HVE Akranesi fyrir um 6 sjúklinga. Fram kom að eftir allt saman þá er enginn sjúklingur að koma í dag, aðeins komnir 2 sjúklingar á listann. Búið var að tryggja mönnun á deildinni. Nú er í athugun að bjóða 3 pláss á Lyflækningadeild og 3 pláss í Stykkishólmi. Bæta þarf við starfsmönnum á Akranesi og Stykkishólmur á að ráða við þessa viðbót núna.
Fram kom að frá og með deginum í dag verði opnað fyrir heimsóknir til sjúklinga í samræmi við reglur þar um. Að öðru leiti verða sömu reglur innan HVE og verið hafa undanfarna dag.
- Betri vinnutími – framvinda
JE ræddi um betri vinnutíma og efni fundar sem var nú í dag. Fjallaði um stöðuna í dag. Nefndi að nú virtist flestir vera að fara að stað með starfsánægjukönnun og eða þjónustukönnun núna og síðan aftur eftir eitt ár til að meta stöðuna. Fram kom að setja þurfi upp sambærilegar kannanir á öðrum stöðum. Nú eru komnar 3 útfærslur til skoðunar og von er á fleirum fljótlega.
Þá fjallaði JE um verkfallslista, erfitt hefur verið að fá staðfestingu hjá öllum stéttarfélögum.
- Verklagsregla til afgreiðslu: Einelti, ofbeldi, kynferðisleg og kynbundin áreitni
Rætt um endurskoðun verklagsreglna um einelti, ofbeldi, kynferðislega og kynbundinna áreitni.
Lagðar fram reglur HVE frá júlí 2016 og reglur Landspítala frá október 2020 til skoðuðunar.
- Mannauðsmál
- Rætt um stöðu mála á Hólmavík, nú er engin hjúkrunarfræðingur þar í vinnu.
- ÞBH fjallaði um stöðu mála á hjúkrunardeildinni á Hvammstanga, en deildarstjórinn hefur sagt starfi sínu lausu.
- Almennt rætt um læknisþjónustu á Snæfellsnesinu.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:05
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.