Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn miðvikudaginn 21. október 2020 kl. 9:00 á Akranesi um teams.

Mættir:  Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson, Rósa Marinósdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.

 

Dagskrá.

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar.

Fundargerð frá 14. október lögð fram og samþykkt.

  1. COVID -19 staðan.

Fjallað var um stöðu mála, JFJ sagði frá uppgjöri sem hún sendir EL vegna covid.  Þá fór ÞB yfir stöðuna á Vesturlandi. Samtals eru því 20 manns í einangrun á svæðinu. 14 eru í sóttkví á Akranesi og 17 í Borgarnesi.  Fram kom hjá Þóri að augljóst væri að staðan færi versnandi á svæði HVE.

  1. Ársáætlun 2021.

Fjallað var um ársáætlun 2021 og stefnumiðaða áætlun til a.m.k. þriggja ára. Fram kom að augljóst væri að launahækkanir á þessu ári væru langt umfram reiknaðar hækkanir í fjárlögum árið 2020.  Áætlun næsta árs verður augljóslega áætlun niðurskurðar miðað við stöðuna í dag ef ekki koma frekari launabætur.

  1. Starfsemisupplýsingar jan- sept.

Rætt var um framlagðar starfsemisupplýsingar fyrir janúar til september 2020.

Á heilsugæslunni hefur samskiptum fjölgað í 93.587 úr 84.814 árið 2019, fjölgun um 10,3% á milli ára. Fjölgunin liggur öll í fjölda símtala, beinum viðtölum hefur fækkað. Almennt hefur verið samdráttur á sjúkrasviði vegna lokana og aðgerðabanns.

Þá var lagt fram minnisblað Embættis landlæknis um bið eftir völdum skurðaðgerðum.

  1. Áform um breytingar á lögum aldraðra.

Lagt fram og rætt um áform um breytingu á lögum um málefni aldraðra nr. 125/1999HRN20060137.

Rætt um málið. RM mun senda inn erindi vegna málsins, sem formaður færni- og heilsumatsnefndar Vesturlands.

  1. Leghálssýnatökur og áætlaðar breytingar frá áramótum.

Rætt um áætlaðar breytingar á leghálssýnatökum frá næstu áramótum. Fram kom að Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins hafi verið falið að taka þetta verkefni yfir. HVE þarf að leggjast í þarfagreiningu vegna málsins og taka saman mögulegan kostnað vegna þessa málaflokks.

Fram kom að á svæði HVE eru þetta um 5.000 konur, þannig gætu þetta verið um 1.145 konur á hverju ári ef 70% kvenna myndi hlýða kallinu á þriggja ára fresti eins og lagt er upp með.  Ef gert var ráð fyrir að 15 mínútur fari í hverja skoðun, þetta jafngildir því 286 klst. í vinnu miðað við þetta.  Fram kom að hægt væri að stytta þennan tíma ef teknar verða upp hópskoðanir eins og umræða er um.

Nauðsynlegt er að gera ráð fyrir þessu í fjármögnunarlíkani heilsugæslunnar.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:08

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.