Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn miðvikudaginn 28. október 2020 kl. 9:00 á teams.

Mættir:  Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson, Rósa Marinósdóttir. Ásgeir Ásgeirsson er fjarverandi.

 

Dagskrá.

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar.

Fundargerð frá 21. október lögð fram og samþykkt.

  1. Frestun valkvæðra skurðaðgerða.

Rætt um auglýsingu sem barst frá heilbrigðisráðuneytinu um staðfestingu fyrirmæla landlæknis á  frestun valkvæðra skurðaðgerða og annarra ífarandi aðgerða frá og með 26. október til og með 15. nóvember næstkomandi. HVE fékk heimild til að framkvæma aðgerðir sem búið var að skipuleggja í gær og í dag.  Frá og með fimmtudegi 28. október til og með 15. nóvember falla niður aðgerðir aðrar en þær sem flokkast brýnar.  Í tilkynningunni segir „Minni aðgerðir sem hægt er að framkvæma í staðdeyfingu, þ.e. á vakandi sjúklingi, verða áfram heimilar og einnig speglanir í greiningaskyni með þeim takmörkunum þó að ekki séu framkvæmdar ífarandi aðgerðir.

Gripið var til þessara aðgerða í ljósi alvarlegrar stöðu sem uppi er á Landspítalanum eftir að hann var settur á neyðarstig.  Nauðsynlegt er að forgangsraða og einn liður í þeirri forgangsröðun er að takmarka eins og kostur er sjúkrahúsinnlagnir á næstu vikum en aðgerðir sem nú eru stöðvaðar geta kallað á komur á bráðamóttöku og/eða sjúkrahúsinnlögn og þannig valdið enn frekara álagi á sjúkrahús.

  1. Svar Landspítala vegna blóðskilunar

Fjallað var um svarbréf frá yfirmönnum nýrnadeildar Landspítala dags. 2. október 2020 sem barst HVE 23. október. Bréfið er ritað af tilefni þess að fyrirspurnir hafa borist frá sjúklingum um að setja upp og umræðu um hvort setja eigi upp blóðskilun á HVE Akranesi og í Reykjanesbæ.

Niðurstaðan Landspítalans er eftirfarandi.  “Í ljósi þeirrar vegalengdar og ástands vega sem um ræðir hér, og þess kostnaðar sem það felur í sér að setja upp blóðskilunareiningu á sjúkrahúsi öðru en Landspítala, þykir okkur ekki tilefni til að setja upp blóðskilunareiningu á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi.”

Landspítali hefur upplýst sjúklinga sem málið varða um niðurstöðuna.

ÞBH mun taka málið saman svo hægt sé að loka því.

  1. Mannauðsmál
  2. Bréf frá deildarstjóra kvennadeildar
  3. Bréf frá starfsmannafélagi HVE í Stykkishólmi

 

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl.

Þura B. Hreinsdóttir ritaði fundargerð.

Fundur með umsjónarmönnum staða kl. 10:00 -11:00 á teams