Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn miðvikudaginn 4. nóvember 2020 kl. 9:00 um teams.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson, Rósa Marinósdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar.
Fundargerð frá 21. október 2020 lögð fram og samþykkt með smávægilegum breytingum.
- Covid – staðan
Rætt var um stöðu á covid í dag. Fram kom hjá ÞB að í heild sinni væri staðan að batna, líklega um 30 sýni jákvæð í dag. 807 í einangrun og 1851 í sóttkví. Á Vesturlandi er staðan aðeins að lagast, komnir úr 33 í 25 á svæði HVE núna. Nefndi að í dag færi fram stór skimum í tengslum við fimmleikana, á von á því að margir losni úr sóttkví í dag. Fram kom að kerfið lægi eitthvað niðri núna hjá sóttvarnaryfirvöldum, en unnið væri að viðgerð.
Rætt um erindi frá Hvammstanga vegna beiðni um að sett verði upp tjald úti fyrir sýnatöku, fjallað um málið. Ekki talið vænlegt að setja upp tjald. ÁÁ svarar Geir þess efnis að fundin verði inngangur sérstaklega fyrir einstök sýn eða þetta fært í sjúkrabílaskýlið ef sýni verða mörg einstaka daga.
- Fundur með þingmönnum kjördæmisins haldinn 2. nóvember
Fjallað var um fund sem framkvæmdastjórn áttu með þingmönnum mánudaginn 2. nóvember. Fundurinn var ágætur og fulltrúar HVE komu á framfæri helstu áskorunum og áherslum í rekstri núna í tengslum við núverandi ár og næsta. Þá var farið yfir helstu framkvæmdir og búnaðarkaup. Varaaflið fékk sérstaka umræðu á þeim fundi.
- Rekstraráætlun 2021
Fjallað um rekstraráætlun 2021. ÁÁ, JFJ og ÞBH munu fara yfir mannahaldsáætlunina n.k. mánudag. Fram kom hjá ÁÁ að hann þyrfti alla vega næstu viku til að loka 1. drögum áætlunar. Nefndi að áætlunarkerfið hafi verið opnað um mánuði á eftir áætlun. Fram kom að ráðuneytið hefur boðað til fundar 20. nóvember n.k. vegna áætlunar.
- Stefnuskjal 2021
JFJ lagði fram stefnuskjal fyrir árin 2021 til 2023. Fjallað var um skjalið og unnið að beytingum. Stefnuskjalið er hluti af rekstraráæltun næsta árs.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:58.
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.