Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 11. nóvember kl. 9:00 um teams.

Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Rósa Marinóasdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson. 

 

Júlínna Einarsdóttir sat fundinn til kl. 10:00 vegna mannauðsmála sem tekin voru fyrir í fyrri hluta fundarins.

Dagskrá.

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar.

Fundargerð frá 4. nóvember var lögð fram og samþykkt.

 

  1. Covid – staðan

Fjallað um covid stöðina.  Síðustu starfsmenn og sjúklingar á Akanesi fóru í sýnatöku í gær, þriðjudag.  Þannig hafa allir reynst neikvæðir eftir þessa uppákomu.

Þá kom fram hjá ÞB að staðan væri almennt að lagast á landsvísu.  Nú eru 86 í sóttkví á okkar svæði, 30 á Akranesi og 56 í Borgarnesi.   Á landsvísu eru 1.076 í sóttkví og 569 í einangrun, 70 liggja á sjúkrahúsi og þar af 3 á gjörgæslu.  24 hafa látist frá upphafi faraldursins.

Þá kom fram að heimsóknir til sjúklinga væru enn bannaðar á Akranesi og á Hvammstanga, þær eru leyfðar með takmörkunum á öðrum stöðum hjá okkur.  Þessar reglur verða endurskoðaðar á fundi viðbrgaðsstjórnar á morgun, fimmtudag.

ÞBH þakkaði póstinn frá ÞB til starfsmanna á Akranesi sem lentu í sóttkví.

 

  1. Stefnuskjal 2021 – áframhaldandi yfirferð

Farið yfir stefnuskjal fyrir árin 2021 til 2023.

Þá var farið yfir tækjalista, bæði vegna kaupa á tækjum nú í ár og þau tæki sem óskað hefur verið eftir.

 

  1. Mannauðsmál

Fram kom að hjúkrunarfræðingur sem ætlaði að hefja störf á Hólmavík hafi hætti við starfið degi áður en viðkomandi átti að mæta til starfa.  Yfirhjúkrunarfræðingur í Ólafsvík mun hætta störfum nú um áramót.

Þá var rætt um breytingar um sýnatöku vegna krabbameinsskoðana. Fram kom að Heilsugæslan á Höfuðborgarsvæðinu muni stýra þessu verkefni, en þetta mun auðvitað hafa áhrif á heilsugæslustöðvarnar.

 

  1. Styrkur til félagslegra þátta í þágu starfsmanna HVE.

Fjallað um styrk til félagslegra þátta í þágu starfsmanna. Samþykkt að JE vinni að nýjum drögum að reglum um styrki vegna félagslegra þátta og íþróttaiðkunnar.

Þá var samþykkt að gefa starfsmönnum einhverja gjöf nú á aðventu í ljósi þess að ekki voru neinar árshátíðir og þess háttar nú í ár.  Stefnt að senda þetta út til starfsmanna fimmtudaginn 19. nóvember.

  1. Íþróttastyrkur til starfsmanna

Fjallað um íþróttastyrk til stafsmanna.

Samþykkt að hafa sömu fjárhæð til starfsmanna á næsta ári, þ.e. kr. 8.000,-.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl.

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.