Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn með umsjónarmönnum og mannauðsstjóra, miðvikudaginn 25. nóvember 2020 kl. 10:00 um teams.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þórir Bergmundsson, Rósa Marinósdóttir, Aldís Olga Jóhannesdóttir, Ásthildur E. Erlingsdóttir, Hrefna Frímansdóttir, Jóhanna Björn Arngrímsson, Júlíana Einarsdóttir og Ásgeir Ásgeirsson. Þura B. Hreinasdóttir er í orlofi.
Dagskrá.
- Rekstraráætlun og stefnuskjal
Farið yfir rekstraráætlun næsta árs og stefnuskjal næstu þriggja ára, eða til og með 2023.
- Covid- 19 staðan og sóttvarnaraðgerðir innan stofnunarinnar
Fjallað um stöðuna varðandi Covid núna og sóttvarnaraðgerðir. Fram kom hjá ÞB að nú væru 3 í einangrun á okkar svæði, 2 á Akranesi og 1 í Borgarfirði. Í heild eru 4 í stóttkví.
Á landsvísu er faraldurinn á niðurleið í heild sinni, en hann lýsti áhyggjum sínum yfir komum ferða- og verkamanna til landsins ásamt því að aukin umferð verði á milli landa um jólin. Sagði að ábendingum hafi verið komið frá aðgerðarstjórn Vesturlands til yfirvalda um að allir komufarþegar verði skikkaðir í skimun, en til þessa hefur fólk haft val um að fara frekar í sóttkví sem síðan hefur gjarnan verið brotin.
Nefnt að allar einkennasýnatökur væru ókeypis núna, aðeins greitt fyrir aðrar slíkar, svo sem vegna vottorða.
- Vinnutímaverkefnið
JE sagði frá fundi sínum vegna vinnutímaverkefnisins, helstu áherslur voru um breytingar á vinnustund. Fljótlega munu liggja fyrir áætlanir vegna dagvinnufólks.
Þá sagði hún frá stofnanasamningum sem í gangi eru núna, félag sálfræðinga, félag sjúkraþjálfara og hjúkrunarfræðinga. En nú er unnið að sameiginlegum samningi við hjúkrunarfræðinga.
Fram kom að unnið verði að starfsánægjukönnun í tengslum við „betri vinnutíma“. Stefnt að því að gera þessa könnun þegar komin verði niðurstaða hjá bæði dagvinnuhópum og vaktavinnuhópum.
- Væntingar um mönnun fagfólks á næsta ári
Þessi dagskrárliður geymdur til næsta fundar en þó komu fram áhyggjur hjá ÞB um mönnun lækna og hjúkrunarfræðinga á svæðinu. Þetta virðist vera viðvarandi vandamál á öllu svæðinu hjá okkur, á hið sama við á landinu öllu, þung vaktbyrði starfsmanna er metin sem ein af stóru ástæðunum.
Rætt almennt.
- Mannauðsmál
5.1 Afslættir fyrir starfsmenn.
RM opnaði umræðu um möguleg afsláttarkjör fyrir starfsmenn, fram kom hjá JE hún væri að vinna að þessum málum.
5.2 Styrkur vegna félagslegra þátta.
- Önnur mál
6.1 Farið yfir stöðuna á hverjum stað fyrir sig.
Borgarnes: Fram kom hjá RM að starfið gengi vel, nú væri fækkun í skimunum og verið væri að draga úr mönnun þeim tengdum. Stefnt að því að loka fyrir skimun um helgar. Sagði mönnun með ágætum en læknismönnun á næsta ári lítur ekki alveg nógu vel út.
Grundarfjörður: ÁEE sagði starfið ganga vel, lítið að gera í skimunum, rúllar vel. Læknamönnun með ágætum. Sálfræðþjónustan gengur vel og mikið er unnið með myndsamtölum. Fór í skólann með yfirhjúkrunarfræðingi með geðfræðslu sem gekk vel.
Stykkishólmur: HF sagði að allt væri gott. Sagði frá heimsókn frá heilbrigðiseftirlitinu í síðustu viku, fram kom að almennt hafi fulltrúinn verið ánægður með ástandið. Fram kom að rafmagn hafi verið tekið af nokkrum sinnum vegna framkvæmda hjá RARIK. Sagði frá tilfærslu starfsmanna vegna framkvæmda, enduræfingin er til dæmis komin upp á 4. hæð. Gengur allt vel, nánast fullt á bakdeildinni núna þó einhver aföll séu vegna covid.
Búðardalur: Gengur vel á heilsugæslustöðinni sagði JBA, allt í föstum skorðum. Fækkun í skimunum eins og annars staðar. Fór í Búðardal í gær vegna framkvæmdanna við Sunnubraut.
Hólmavík: Lítið um sýnatökur þar núna.
Hvammstangi: AOJ sagði lítið að frétta, virðist allt ganga vel.
Akranesi: ÞB sagði að starfið væri að komast í fullan gang eftir stöðvun valaðgerða sem stoppuðu vegna Covid. Stefnt er að því að ná helst 8 liðskiptum pr. viku núna til að komast sem næst þeim fjölda aðgerða sem áætlaðar voru. Fjöldi sjúklinga á A-deild er með minna móti núna, á B-deild hefur verið rólegt undanfarið vegna stöðvunar á aðgerðum, C-deild hefur verið svipuð og verið hefur.
6.2 Reglugerð um heilbrigðisumdæmi og hlutverk stofnana.
JFJ fór yfir nýja reglugerð um heilbrigðisumdæmin og hlutverk stofnana.
Fjallað um skipun fagráðs hjá HVE, rætt um að hafa 5 fulltrúa í ráðinu, í reglugerðinni kemur fram að í ráðinu eigi að vera einn hjúkrunarfræðingur og einn læknir, þá væru skipaðir 3 aðrir heilbrigðsstarfsmenn. Fagráð þarf að setja sér starfsreglur. Stefnt að því að skipa í fagráðið frá næstu áramótum. Samþykkt að gera ráð fyrir 5 manna fagrráði heilbrigðisstétta sem skipuð verði til þriggja ára.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 12:15
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.