Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 2. desember 2020 um teams.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar.
Fundargerðir frá 11. og 25. nóvember lagðar fram og samþykktar.
- Covid – staðan
Fjallað um stöðuna í dag. Fram kom hjá ÞB að nú væru 17 ný smit í dag. Á okkar svæði eru 3 í einangrun og 15 í sóttkví.
- Rekstraráætlun 2021 og útkomuspá 2020
Fjallað var um rekstaráætlun fyrir árið 2021 og útkomuspá fyrir árið 2020. ÁÁ fór yfir helstu þætti útkomu og áætlunar. Fram kom að í heild sinni hækkuðu fjárveitingar um 2,5% frá fyrra ári, 1% á heilsugæslusviði, 3,5% á sjúkrasviði og 3,6% á hjúkrunarsviði.
Rætt um stöðuna.
- Framkvæmdir sem eru í undirbúningi á HVE Akranesi
- Framkvæmdir á A og B –deild
JFJ lagði fram minnisblöð um framkvæmdir á A og B deild. Samkvæmt því er gert ráð fyrir að framkvæmdir byrji þann 15. maí 2021.
- Viðbótarskurðstofa
JFJ lagði fram minnispunkta um málið.
- Uppsögn sjúkraþjálfa á aðstöðu í Ólafsvík
JFJ lagði fram uppsögn leigusamnings sjúkraþjálfara í Ólafsvík frá 1. desember 2020.
Jafnframt lagði hún fram yfirlit yfir þann búnað sem sjúkraþjálfari hefur notað og átt á staðnum.
Málið verður skoðað.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:30
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.