Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 9. desember 2020 kl. 10:00 um teams.

Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.  Umsjónarmenn starfsstöðva; Aldís Olga Jóhannesdóttir, Hrefna Frímannsdóttir, Elín Friðriksdóttir og Jóhanna Björn Arngrímsson.

 

Dagskrá.

  1. Rekstraráætlun og útkomuspá 2020

Fjallað var um rekstraráætlun 2021 og útkomuspá fyrir árið 2020.  Fram kom að án teknu tiliti til fjáraukalaga gerði útkomuspá ráð fyrir um 150 m.kr. neikvæðri afkomu á árinu, fer þó væntanlega niður 70 m.kr. að teknu tilliti til fjárauka.  Þá er jákvæð eiginfjárstaða HVE um 53 m.kr. sem gerir þó afkomu ársins 2020 viðunandi.

Þá gerir áætlun næsta árs ráð fyrir um 187 m.kr. niðurskurði á árinu, eða um 3,5% af fjárveitingum ársins.

En í heild hækka raun fjárveitingar um 2,5% á milli áranana 2020 og 2021.  Taka verður tillit til þess að laun hafa hækkað árið 2020 um ríflega 4% og hækka svo aftur 1. janúar 2021 um 4% að auki.  2,5% hækkun fjárveitinga milli ára duga því augljóslega ekki til.

 

  1. Önnur mál.

 

2.1       Breyting sóttvarnarreglna frá 10. desember.

ÞB fjallaði um breytingar á sóttvarnarreglum sem kynntar voru í gær, 8. desember og taka gildi þann 10. desember.  Fram kom hjá honum að þetta hefði engar breytingar í för með sér innan HVE. Þetta sneri fyrst og fremst að verslunum, sundstöðum, kirkjum, íþróttastarfi og fleira sbr. meðfylgjandi yfirlit.

2.2       Betri vinnutími.

JFJ fjallaði um tillögur um betri vinnutíma.  Sagði að ef stytting gengi ekki upp án skipulagsbreytinga þá þyrfti að skoða það sérstaklega, en málið er í skoðun í heild sinni.

Umsjónarmenn starfsstöðva sögðu frá hverju ráðgert er að breyta í verklagi og skipulagi starfssstöðvanna í tengslum við betri vinnutíma.

RM nefndi að unnið sé að undirbúningi bólusetningar vegna Covid.

Fundarmenn hittast aftur á fundi um fjármögnunarlíkan heilsugæslunnar kl. 13:00 í dag.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:20