Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 23. desember 2020 kl. 9:00 um teams.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson, Rósa Marinsósdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.
Dagskrá:
- Samþykkt síðustu fundargerðar.
Fundargerð frá 2. og 9. desember 2020 lögð fram og samþykkt.
- Fjármál og rekstur.
Fjallað um fjármál og rekstur, sérstaklega fyrirhugaðan niðurskurð á næsta ár.
En eins og fram kom á síðasta fundi framkvæmdastjórnar hækkar raun fjárveiting um 2,5% á milli áranna 2020 og 2021og nú þegar laun hækka nú strax um áramót um tæp 4%, þá þarf að auki að gera ráð fyrir vægi hækkana á launum nú í ár á launum næsta árs. En laun hækkuðu um ca. 4,1% á í apríl 2020, samtals vegur því hækkun launa á árinu miðað við síðasta ár í það minnsta 7,9%. Þá voru samþykktir nýir kjarasamningar við lækna með gildistíma 2 ár aftur í tímann, sem setur þetta allt í uppnám að auki þetta ár og næsta ef ekki fylgja með fjárveitingar.
- Covid – staðan og undirbúningur bólusetninga.
Staðan á Vesturlandi er góð, en þar eru 3 í einangrun. Staðan á landsvísu er þó heldur verri.
Fjallað um stöðu mála varðandi bólusetningar.
ÞBH fór yfir skipulag bólusetningaráætlunar, en gert er ráð fyrir að bólusetningar hefjist 30. desember. Eitt teymi fer á Snæfellsnesið og annað á norður svæðið. Fram kom að bólusetningarefnið kæmi kælt en við þurfum að tryggja rafmagnskælibox til að geyma efnið í flutningum.
ÞBH og RM eru með fyrirliggjandi upplýsingar um alla aðila sem eru í forgangi núna fyrir bólusetningu, forskráning liggur fyrir í bólusetningarkerfið fyrir hjúkrunar- og dvalarheimilin.
Þá fær HVE 54 skammta til að gefa starfsmönnum, byggir á upplýsingum sem komið hafa fram frá yfirhjúkrunarfræðingum á hverjum staða fyrir sig, þ.e. þeir aðilar sem eru í sýnatökum. Í heild eru þetta 310 skammtar sem koma í 62 hettuglösum fyrir fyrstu bólusetningu.
Fram kom að farið verður eftir þeim reglum og viðmiðum sem í gildi eru um landið varðandi okkar heilbrigðisstarfsfólk í bólusetningu.
Rætt ítarlega um stöðuna og fram kom að endanleg áætlun liggi fyrir nú í dag. Þá var umræða um fyrirkomulag flutninga efnisins um svæðið, mögulega mun sjúkrabifreið verða notuð fyrir norður svæðið. Þá kom fram að flugvélin með bóluefnið mun lenda þann 28. desember n.k.
- Skimun fyrir leghálskrabbameini – staðan
Umræða um skimun fyrir leghálskrabbamein. Bætt verður við 10% stöðu ljósmóður á Akranesi vegna þessa. Fram kom hjá RM að búið væri að semja við rannsóknarstofu sem tekur verkið að sér. Þá er von á nýjum sýnaglösum. Unnið er að skipulagi á öllum starfstöðvum HVE.
- Starfslokakveðjur
Rætt um starfslokakveðjur til starfsmanna sem hætt hafa á árinu sökum aldurs.
- Önnur mál
6.1 Mannauðsmál.
RM ræddi um styttingu vinnuvikunnar. Tilkynning um málefnið er inni á workplace, kom þar inn þann 17. desember. Nú hafa 150 starfsmenn séð fréttina. Rætt almennt um málið. Þá var umræða um skoðannakönnun í framhaldinu, fyrst nú í janúar og síðan í síðari hluta ársins.
ÞB ræddi læknamönnun í Grundarfirði.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:45
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.