Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 6. janúar 2021 kl. 10:00 um teams.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar.
Fundargerð frá 23. desember 2020 lögð fram og samþykkt.
- Horft um öxl.
JFJ fór yfir helstu málefni liðin árs, sýndi á skjá samantekt yfir helstu verkefni og kaup á búnaði. Fram kom að á árinu 2020 hafi verið fjárfest í búnaði fyrir 114,7 m.kr.
- Fjármál og rekstur.
Farið yfir fjármál og rekstur, sérstaklega samanburð rekstrar við útkomuspá árið 2020. Útkomuspá gerði ráð fyrir um 162 m.kr. neikvæðri afkomu fyrir árið en eftir hækkun rekstrarframlags er staðan neikvæð þann 6. janúar um 62 m.kr. Það liggur þó fyrir að ekki hafi allir reikningar vegna liðins árs borist.
Rætt um stöðuna á Hvammstanga, en fundað verður með stjórnendum þar í dag. Stefnt er að fara n.k. miðvikudag að auki til fundar.
Fjallað um áætlun á útboði og framkvæmdum á Akranesi og Stykkishólmi.
- Covid: Staðan og bólusetningar í síðustu viku.
ÞB fjallaði um stöðuna í dag á svæðinu. Staðan á landinu er heldur versnandi, nú eru 133 í einangrun, stutt síðan fjöldin var undir 100. Svo virðist sem flestir greinist við komur til landsins, og þá kom fram að það væri um 27% þeirra smita sem greinast væru vegna seinni skimunar. Ástandið í heiminum er víða mjög slæmt og lönd farin að beita útgöngubanni.
Rætt um bólusetingar, ÞBH sagði að allt ferlið hafi gengið mjög vel. Hjá HVE voru þetta 310 einstaklingar sem voru bólusettir, þar af 56 starfsmenn. Sagði að við næstu bólusetningu væru það framlínustarfsmenn, sjúkraflutningamenn og allir eldri en 80 ára eftir ákveðnum viðmiðum. Fara þarf vel yfir hvaða starfsmenn og aldraðir falla þarna undir, helgast auðvitið eftir því magni sem kemur af bólusetningarefni. Gert er ráð fyrir að næstu skammtur fyrir þennan hóp komi síðari hluta janúar. Sagði að öll hjúkrunarheimilinn hafi verið mjög vel undirbúinn og með allt tilbúið.
- Áhrif á styttingu vinnutíma / betri vinnutíma á opnunartíma heilsugæslustöðva.
Fram kom að á tveimur heilsugæslustöðvum mun opnunartími breytast, þ.e. í Búðardal og í Grundarfirði. Á báðum þessum heilsugæslum hefur verið lokað í hádeginu í staðinn verður framvegis opið í hádeginu og lokað kl. 15:00 í staðinn.
Laga þarf upplýsingar í heilsuveru og heimasíðum um opnun.
- Fjármögnunarlíkan heilsugæslunnar.
Fundur verður um fjármögnunarlíkan heilsgæslunnar á eftir.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:30
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.