Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 17. febrúar 2021 kl. 9:20 um teams.

Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Rósa Marinsdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson

 

Dagskrá.

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar

Fundargerð frá 10. febrúar 2021 lögð fram og samþykkt.

  1. Staða bólusetninga vegna Covid- 19

ÞB fjallaði um stöðu bólusetninga vegna Covid -19, Nú eru 414 skammtar að fara út, þar af 396 í síðari hluta bólusetningarinnar. Þá er fyrsta sendingin frá AstraZenca komið í hús. Samtals 41 glas með 10 til 11 skömmtum hvert, samtals 451 skammtar m.v. 11 í glasi. Aðalega verða það starfsmenn hjúkrunarheimila sem, lögreglumenn og fleiri útkallsaðilar sem fá síðari skammtinn.  Þá kom fram hjá ÞBH að einnig væru um 400 skammtar af Pfeizer fyrir seinni skammtinn.  Þá koma 40 glös af AstraZenca í næstu viku.   Fram kom að eftir næstu viku ætti að vera búið að ná stórum hluta af starfsmönnum HVE ásamt öllu útkallsfólki, þ.e. slökkviliðsmönnum, lögreglumönnum og fleirum.

Staðan á landinu er mjög góð núna, raunar bestu tölur frá upphafi faraldurs.

  1. Undirbúningur framkvæmda á Akranesi og í Stykkishólmi

Rætt um undirbúning framkvæmda á Akranesi og í Stykkishólmi. Fundur verður um málefnið í dag.

Á Akranesi er í skoðun að fjölga liðskiptaaðgerðum fyrri hluta árs, Björn Gunnarsson er að vinna að útfærslu.

Fimmtudaginn 18. febrúar mun JFJ og umsjónarmaður fasteigna funda með yfirmönnum í Stykkishólmi um framkvæmdir þar. Nú eru um 65% verksins búið á þeim verkhluta sem er í gangi núna.  Verið er að leggja loka hönd á útboð fyrir næsta fasa.

  1. Þjónustukönnun heilsugæslustöðva á landsbyggðinni

Fjallað um þjónustukannanir heilsugæslustöðva á landsbyggðinni, samþykkt að senda hverri stöð yfirlit stöðvar ásamt samanburði við Vesturland í heild.

Ljóst er að vinna þarf að nokkrum umbótum víða á starfssvæði HVE, t.d. er kallað eftir aukinni rafrænni þjónustu, úrbóta á símatímum og að sett verði upp sambærilegri þjónusta eða verklag á öllum stöðum HVE.  Þetta getur ekki átt við alla þjónstu, t.d. heimahjúkrun um helgar og fleira, aðallega er átt við daglega þjónustu á opnunartíma heilsugæslustöðvanna.

Gert er ráð fyrir að yfirmenn á hverjum stað hafi kynningu á þessum niðurstöðum fyrir sína starfsmenn.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:10

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.