Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 31. mars 2021 kl. 9:00 um teams.

 

Mættir:         

Dagskrá.

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar

Fundargerð frá 24. mars 2021 lögð fram og samþykkt.

  1. Mönnun heilsugæslustöðva HVE

ÞB fjallaði um uppsögn Lindu Kristjánsdóttur yfirlæknis heilsugæslustöðvarinnar í Borgarnesi.  Uppsögn hennar tekur gildi frá 30. apríl 2021 með þriggja mánaða fyrirvara.

Fundarmenn sammála um að mikil eftirsjá verði af Lindu.

Rætt um mönnun lækna á heilsugæslustöðvum HVE almennt.

JFJ lagði fram yfirlit yfir fjölda íbúa á þjónustusvæðinu og þróun íbúafjölda frá 2010. Íbúum á svæðinu hefur fjölgað um 1.197 á þessum árum 6,8%, þar af 1.171 á Akranesi 16,3%.  Rætt um nauðsyn þess að skoða læknisþjónustu á svæðinu öllu m.t.t. álags og fjölda.  Þá þarf að taka mið af fjármögnunarlíkani og álagi í læknamönnun.

Málefnið rætt.

Þá var samþykkt að auglýsa eftir tveimur læknum fyrir Ólafsvík og Grundarfjörð strax eftir helgina.  Gert verður ráð fyrir að þeir vinni saman hvað varðar vaktir og fleira.

 

  1. Önnur mál

 

  • Þjónusta geðlækna

Lagður fram tölvupóstur frá Sigurði Erni Hektorssyni yfirlækni hjá HH.   Erndi hans var að fá upplýsingar um geðlæknisþjónustu á svæðinu og hvort falast verði eftir einhverri þjónustu frá HH í þessum efnum.

  • Fullbólusettir starfsmenn sem ferðast erlendis.

Fullbólusettir starfsmenn HVE sem ferðast erlendis.

  • Fara í sýnatöku þegar heim er komið (við fyrsta mögulega tækifæri).
  • Ef sýni neikvætt þá má starfsmaður mæta til vinnu en skal nota maska og hanska við öll sín störf.
  • Sýnataka aftur á 5.degi frá heimkomu/fyrri sýnatöku.
  • Ef sýni neikvætt þá er varúðarráðstöfunum aflétt.

 

Rætt um málefnið, fram kom að hið sama gildi um þá sem sýkst hafa af Covid.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:15

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.