Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn HVE, miðvikudaginn 24. mars 2021 kl. 9:00 um Teams.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson, Rósa Marinósdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar
Fundargerð frá 17. mars 2021 lögð fram og samþykkt.
- Covid- 19 staðan
Fjallað um stöðu mála, á landinu öllu eru nú 435 í sóttkví og 57 í einangrun, einn er á sjúkrahúsi. Af þessum 57 eru 10 af súrálsskipi í Reyðarfirði. 3 eru í sóttkví á Vesturlandi.
ÞBH sagði að nú væri verið að endurbólusetja 390 manns í dag og á morgun með Pfizer. Samkvæmt áætlunum koma svo 162 skammtar fyrir bólusetningu 2 og 138 skammtar fyrir bólusetningu 1 í viku 13 og 180 skammtar fyrir bólusetningu 2 og 420 fyrir bólusetningu í viku 15. Allt bólsuefni frá Pfizer. Fram koma að bólusetning með AstraZeneca liggi niðri eins og er.
Rætt var almennt um bólusetningar og forgangsröðun. Nú er verið að klára bólusetningu fyrir árganga 1942 til 1946 og vonast er til að það klárist í viku 15. Byrjað verður á árgöngum 1947 til 1951 eftir það.
- Reglur um notkun tölvupósts á HVE
Lagðar fram reglur nr. 331 frá 25. mars 2020 um meðferð, varðveislu og eyðingu á tölvupóstum afhendingarskyldra aðila. Þar kemur m.a. fram að afhendingaskyldir aðilar skuli setja sér skráðar notkunarrelgur um meðferð, verðveislu og eyðingu tölvupósta.
Fjallað um kerfi sem eru möguleg til að skrásetja tölvupósta sem skjöl.
Rætt um málið, setja þarf reglur um vistun og skráningu á tölvupósti.
- Betri vinnutími – staða innleiðingar í vaktavinnu – Júlíana kemur til fundar kl 9:30.
Fjallað um betri vinnutíma. Júlíana fór yfir vinnuna vegna betri vinnutíma vegna vaktavinnufólks. Fram kom að FJS teldi að kerfin verði tilbúin tímalega.
Rætt um málið, eins og staðan er hér hjá HVE virðist enginn ætla að stytta vinnutímann, allir starfsmenn hafa kosið að bæta við sig starfshlutfalli. Þannig eru í raun allir starfsmenn einfaldlega að fá hærri laun, m.v. hærra stöðugildi, en þó vinnuframlag í samræmi við það stöðugildi sem var.
Fram kom í yfirliti ÁÁ sem byggt er á gullinbrúarskjölum að árleg kostnaðarviðbót gæti numið um 125 m.kr. Gæti verið hærri ef fjarvistarhlutföll verða færð í samræmi við raunverulegar fjarvistir.
Rætt var um yfirvinnu vegna veikindafjarvista og fleira. ÁÁ sagði það tilfinningu sína að því væri beint til stofnana að stilla skuli skjalið þannig að ekki verði kostnaðaraukning sem væri alveg fráleitt, þessi breyting kallaði strax á viðbót sem nemur 21 stöðugildum, úr 88,7 í 109,7 eða 23,7% aukning. Ekki væri nokkur leið að setja upp þannig sýndarveruleika að öll yfirvinna muni falla út við þessar breytingar. Yfirvinna á þessum deildum er að mestu leit komin til af tilfallandi fjarvistum vegna veikinda og þess háttar fjaravistum.
Rætt var um styttingu vinnuvikunar hjá dagvinnufólki. En fram kom að reynslutíminn væri almennt 8 mánuðir utan þriggja eininga sem settar voru upp með þriggja mánaða reynslutíma. Rætt var um kaffi- og matartímana. En miðað við 100% starfsmann þá nemur hámarksstytting 208 klst. pr. ár og miðað við lágmarksstyttingu 52 klst. pr. ár. Brögð virðast vera að því að starfsmenn sem völdu hámarskstyttinu taki sér neysluhlé eins og áður. Það á ekki að vera í boði. Einnig var rætt um hvíldartíma.
Tekin verður sérstakur fundur um málefnið.
- Mönnun sálfræðiþjónustu
Rætt um mönnun sálfræðiþjónustunnar.
ÞB sagði frá fundi sem hann og JFJ áttu með yfirsálfræðingi. Fram kom að nú eru 3 sálfræðingnar í starfi og okkur vantar því 2. Engin hefur sótt um eins og er. Unnið er að lausnum að málinu.
JFJ fór yfir tölulegar upplýsingar um þjónustuna, þrátt fyrir aukna þjónustu þá bætist við biðlista þrátt fyrir að fjöldi meðferða hafi aukist frá 1.398 árið 2018 í 3.915 árið 2020, aukninginn er 180%.
- Rafrænar undirskriftir
Rætt um rafrænar undirskriftir. HVE hefur nú aðgang að Signet til að ganga frá rafrænum undirritunum. ÁÁ fór lítilega yfir kerfið. Umræða var einnig um notkun á persónulegum rafrænum skilríkjum vegna starfa. Gera þarf verklagsreglur um málefnið.
- Lyfjanefnd HVE- endurskipun
Lögð fram skipunarbréf í lyfjanefnd til eftirtalda aðila: Valdís Heiðarsdóttir deildarstjóri lyflækningadeildar, fomaður, Þór Oddsson lyfjafræðingur, Stefán Þorvaldsson yfirlæknir lyflækningadeildar og Þórir Bergmundsson framkvæmdastjóri lækninga. Skipunin er til næstu tveggja ára.
ÞB fór yfir málefnið, sagði að allir hefðu samþykkt skipun sína. Sagði nefndina hafa skilað góðu starfi og væri nauðsynleg, en hlutverk nefndarinnar er að einfalda og samræma lyfjaval, gefa út lyfjalista og fylgja honum eftir, auka öryggi í lyfjameðferð og dreifa upplýsingum um lyfjamál til lækna og hjúkrunarfræðinga og halda lyfjakostnaði í lágmarki.
Rætt um reglugerð vegna lyfjaumsýslu á heilbrigðisstofnunum, hvort hún væri yfirleitt til. ÞB og JFJ munu senda örlítið breytt skipunarbréf til ofangreindra aðila.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:00
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.