Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 5. maí 2021 um Teams.

Mættir:          Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.

 

Dagskrá.

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar.

Fundargerð frá 28. apríl lögð fram og samþykkt.

 

  1. Fjárhagsleg málefni.

ÁÁ lagði fram og fór yfir rekstraryfirlit fyrir tímabilið janúar til mars 2021 ásamt launakostnaði og aðkeyptri læknisþjónustu fyrir tímabilið janúar til apríl 2021.

Samkvæmt rekstraryfirliti er nú 27,4 m.kr. rekstrarhalli, eða 1,6%, en afkoman hefur þó lagast síðan í janúar, en þá var rekstrarhallinn 48,8 m.kr. Helgaðist þá aðallega vegna afturvirkra launahækkanna.

 

  1. Önnur mál.

 

3.1     Mönnun í Ólafsvík.

3.2     Framkvæmdir á Akranesi og Stykkishólmi.

Rætt um framkvæmdir á Akranesi og í Stykkishólmi.  Vonast er til að útboð fari út á næstu dögum vegna Stykkishólms.

JFJ fór yfir stöðu mála.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:00

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.