Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 19. maí 2021 kl. 09:00 um Teams.

Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.

 

Dagskrá.

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar

Fundargerð frá 5. maí 2021 lögð fram og samþykkt.

  1. Covid – bólusetningar og sýnatökur

Farið yfir stöðuna varðandi covid, bólusetningar og sýnatökum.   Fram kom hjá ÞB að nú væru 3 í einangrun á svæðinu.  Almennt er staðan góð á okkar svæði.  58 eru í einangrun á landsvísu og 120 í sóttkví, 3 eru á spítala og þar af 1 á gjörgæslu.

Búið er að bólusetja um 45% af Vestlendingum, í dag voru blandaðir 720 pfizer skammta fyrir Akranes.  140 skammtar voru sendir í Borgarnes í dag.  Hvammstangi, Búðardalur og Borgarnes á morgun.   Á Akranesi verðar bólusett með AstraZeneca á morgun fimmtudag. Fram kom að þetta væru bólusetningar um 2.100 manns í það heila.  Jafnan er unnið að bólusetningum hjá okkar svæði í hverri viku.

Á landsvísu hafa verið gefnir 220 þús. skammtar, 156 þús. einstaklingar hafa fengið að minnsta kosti einn skammt og þar af eru 73 þús. fullbólusettir.  Á Vesturlandi er fjöldinn 45.865 m.v. 100 þús. íbúa, hið hæsta á landsvísu, höfðuborgarsvæðið með 42.063, Suðurnesin eru lægst með 35.932.

Rætt var um beiðnir um sýnatöku vegna ferðahópa. Fram kom að unnið væri að þessum lausnum í tengslum við landamæraskimunina, en ekki væri hægt að fara fram á að sýni verði tekin á okkar heilsugæslum, nánast hvenær sem er. Engin grundvöllur fyrri því að gera þetta um allt land. Nú hafa verið 2 landamærastöðvar hjá HVE, Borgarnes 5 daga vikunnar og Akranes 7 daga vikunar, niðurstaðan er einfaldlega sú að heilsugæslunar eru ekki í stakk búnar til að bæta þessu við sig. Þá kom fram að greiningargetan væri ónóg að auki hjá Landspítala eins og staðan er núna, en einhverjar viðræður hafa verið við ÍE um aðkomu þeirra vegna þessa.

  1. Mannauðsmál

ÞB sagði frá umsóknum um stöður lækna í stöður á heilsugæslum.

Þá kom fram hjá ÞB að mönnun væri nú að mestu trygg í Ólafsvík og Grundarfirði nú í ár.

Rætt var um að nauðsynlegt sé að vinna áfram að styrkingu á læknisþjónustu þar, sama á við í Borgarnes, en þar er núverandi yfirlæknir að láta af störfum.

Rætt um mönnun á hjúkrunardeildinni á Hvammstanga.

Fjallað um sálfræðiþjónstu á svæðinu og afleysingar.

  1. QlikSenseEnterprise – Mælikvarðar úr starfsemi og stjórnendaupplýsingar í gagnvirku viðmóti

Rætt um mögulega innleiðingu á Qlik-stafrænu mælaborði. Viðræður hafa verið við Hrafnhildi Peizer um mælaborðið. Fyrsta kastið hefur aðalega hefur verið horft til fjárhagsupplýsinga, mannauðs og svo tenginum við Sögu vegna legu, afgreiðslu og samskipta.

Nauðsynlegt verður að skipa stýrishóp um verkefnið. Von er á tilboði í verkefnið í dag eða næstu daga.

  1. Framkvæmdir

Fjallað var um framkvæmdir, JFJ lagði fram til skoðunar tilkynningu til almennings vegna framkvæmda á A- og B-deild.

Varðandi skurðstofu er stefnt að útboði í viku 23, áætlað er að hafist verði handa við verksamning og upphaf verks í fyrri hluta ágúst.

Þá er verið að vinna að endurbótum í sjúkraþjálfun á Akranesi vegna raka. Framkvæmdir eru nýlega hafnar.

Útboðið vegna framkvæmda í Stykkishólmi átti að fara úr 27. apríl s.l.  Fram kom hjá JFJ að ekki er enn búið að auglýsa úboðið, verkið fór fyrir samstarfsnefnd um opinbera þjónustu í annað sinn sem hefur tafið málið.  Ekki liggur fyrir hvenær verkið hefst endanlega. En nú þegar hefur upprunleg áætlun riðlast um 3 vikur.  Þá kom fram að ekki væri búið að skila þeim verkhluta hússins sem átti að skila í lok apríl, nokkur frágangsatriði eru eftir.

JFJ sagði að á næstu dögum eigi að skila samantekt um óskir um helstu viðhaldsframkvæmdir á vegum Ríkiseigna fyrir árið 2022.  Þá verður fundur að ósk ráðuneytis um húsnæði heilbrigðisstofnana um mögulega fækkun á íbúðarhúsnæði fyrir starfsmenn.

  1. Fundur með umsjónarmönnum staða 26. maí

Samþykkt að funda með umsjónarmönnum starfsstöðva þann 26. maí n.k.   Ásthildur E. Erlingsdóttir verður kvödd á þessum fundi, en hún er að flytja til Reykjavíkur.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:08

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.