Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 11. ágúst 2021 kl. 09:00 um Teams.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar
Fundargerð frá 9. júní 2021 lögð fram og samþykkt.
- Staða bólusetninga COVID, skipulag vegna áframhaldandi bólusetninga og hraðpróf fyrir skimanir.
Fjallað um stöðu COVID faraldursins sem fór aftur á fulla ferð síðari hluta júlímánaðar og nú eru um 1.400 manns í einangrun á landinu. Eftir nokkurt annríki vegna fjölda smita í umdæminu sem fór mest í 44 hefur staðan á Vesturlandi farið batnandi eftir því sem liðið hefur á. Í dag eru 27 í einangrun í umdæmi lögreglunnar á Vesturlandi og 1 á Hvammstanga. Góðu fréttirnar eru þær að um 93% þeirra sem eru með greint smit eru einkennalitir eða einkennalausir.
Í síðustu viku hófst skoðun á möguleikum þess að taka upp hraðpróf innan HVE til að testa sjúklinga og starfsmenn með einkenni sem geta bent til Covid. Þessi hraðpróf teljast örugg til notkunar ef um einkenni er að ræða en henta ekki til skimunar einkennalausra. Þórir Bergmundsson og Pétur I. Jónsson tóku verkefnið að sér og eru prófin nú komin til skoðunar á HVE Akranesi. Á næstu dögum verða settar verklagsreglur um notkun hraðprófanna fyrir sjúklinga og starfsmenn á starfsstöðvum HVE en þau kalla ekki á neinn sérstakan tækjabúnað. Þetta verkefni er ótengt því sem stjórnvöld ákváðu að taki gildi frá 16. ágúst þ.e. að Íslendingum sem koma erlendis frá verði gert skylt að fara í test innan við 48 klst. frá komu til landsins. Það verkefni er óleyst.
ÞBH fór yfir bólusetningar sem eru hafnar aftur eftir styttra hlé en ráðgert var vegna ákvörðunar um að bjóða upp á svokallaða örvunarskammta. Þá var farið yfir bólusetningar 12-15 ára barna sem verður boðið með auglýsingum á þremur tungumálum en ekki boðuð sérstaklega, þau eru slétt 1.000 á svæðinu öllu en 70% þeirra er á Akranesi og í Borgarnesi.
ÞBH fór yfir áætlun bólusetninga næstu viku og verður hún kynnt á heimasíðu HVE.
- Framkvæmdir og útboð
Akranes: Framkvæmdir eru á áætlun og veggir úr gipssteini farnir að sjást á lyflækningadeildinni. Búið er að leggja loftræstistokka og komið að því að leggja sprinkler vatnsúðakerfið. Handlækningadeildin er skemmra á veg komin eins og verkáætlun gerir ráð fyrir.
Stykkishólmur: Samkvæmt upplýsingum verkefnisstjóra FRS ganga framkvæmdirnar mjög vel og búið að rífa nánast allt innan úr 2. og 3. hæðinni og niðurrif á lyftustokkunum ætti að klárast í vikunni. Allir aðilar hafa átt gott samstarf um framkvæmdina sem tengist heilsugæslunni, hvaða svæði eru undir hverju sinni og hvernig færsla innan heilsugæslunnar getur átt sér stað þannig að sem minnst rask verði á.
- Mannauðsmál
Rætt um nýja lækna í Borgarnesi og húsnæðismálin þar. Þórir og Rósa fylgja því betur eftir.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:08
JFJ ritaði fundargerð.