Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 25. ágúst 2021 kl. 13:00 um Teams.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson, Ásgeir Ásgeirsson og Vilborg Lárusdóttir.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar.
Fundargerð frá 18. ágúst lögð fram og samþykkt.
- Covid, bólusetningar og reglur hraðprófa fyrir skimanir.
Fjallað um bólusetningar og reglur hraðprófa fyrir skimanir. Fjölgun er á smitun á Vesturlandi, nú eru 33 í einangrun, voru 20 fyrir viku síðan og 75 í sóttkví. Þá kom fram að veikindi væru almennt ekki mikil.
Fram kom að bólusetningar gengju vel og stefnt er á að taka upp fastar mánaðarlegar bólusetningar. Börnum á aldrinum 12 til 15 ára hefur verið boðið bólusetning.
Unnið er að skipulagi vinnureglna um hraðpóf.
- Framkvæmdir.
JFJ fór yfir framkvæmdir.
Á Akranesi er verkið á legudeildum á áætlun, beðið er eftir útektaraðila fyrir þennan verkhluta. Upp komu frávik á B-deildinni sem gæti tafið verkið þar eitthvað lítilega. Ætti ekki að hafa áhrif á A-deildina. Hvað varðar skurðstofuna, þá eru viðræður við verktaka um þá framkvæmd, búið er að panta efni í skurðstofuna sjálfa og kallað hefur verið eftir tilboðum í búnað. Nú þegar er búið að panta autoklafa.
Sjúkraþjálfun á Akranesi er tilbúin eftir lagfæringar.
Í Stykkishólmi ganga núverandi framkvæmdir ágætlega.
- Fundur með HRN vegna hjúkrunarrýma.
Rætt um fund með fulltrúum HRN vegna hjúkrunarrýma í Stykkishólmi.
- Gjafi og arfur til HVE á Akranesi.
Rætt um arf sem fékkst úr dánarbúi fyrir HVE á Akranesi. Ráðist verður í tækjakaup í samræmi við erfðaskrá hið fyrsta.
Rebbekkustúkan nr. 5 Ásgerður I.O.O.F gaf heilsugæslunni á Akranesi kvenskoðunarbekk ásamt skoðunarljósi en fyrr á árinu gafa stúkan CMS Pagawriter TC30 Cardiograph ásamt hjólastandi.
Gjafi þessar eru hinar höfðingslegustu og þiggur HVE þær með þökkum.
- Kveðjuhóf hættra starfsmanna á HVE Akrnaesi.
Vilborg fjallaði um kveðjuhóf til hættra starfsmanna vegna aldurs á Akranesi, sem verður fimmtudaginn 26. ágúst kl. 18. Verið er að kveðja eftirtalda starfsmenn: Anna Auðbjörg Jakobsdóttir, Ólöf Hannesdóttir, Gísli Björnsson, Lára Dóra Oddsdóttir, Ragnheiður Þ. Benediktsdóttir, Ragnhildur Bjarnadóttir, Ríkey Andrésdóttir, Sigrún Ásmundsdóttir og Erla Lind Þorvaldsdóttir.
- Verkefni næstu vikna.
Fjallað um helstu verkefni næstu vikna.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 14:30.
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.