Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 9. júní 2021 kl. 10:00 um Teams.

Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson.

 

Dagskrá.

  1. Samþykkt síðustu fundargerðar

Fundargerð frá 2. júní 2021 lögð fram og samþykkt.

 

  1. Staða bólusetninga

Fjallað um stöðu bólusetninga, fram kom hjá ÞBH að dregnir hafi verið upp 1.000 skammtar fyrir bólusetningu dagsins á Akranesi og á Snæfellsnesi.  Á morgun verða blandaðir rúmlega 500 skammtar fyrir Borgarnes, Hvammstanga og Búðardal.  Stór bólusetning verður einnig í næstu viku og líklega verður okkar svæði að mestu klárað í þar næstu viku.   Gera má ráð fyrir að seinni bólusetningar klárist í júlí og ágúst á svæðinu, líklega fyrir um 2.800 manns.

Á Vesturlandi hafa nú ríflega 11 þúsund manns fengið að minnsta kosti einn skammt, eða 59%, óbólusettir eru 7.700 einstaklingar af heildar íbúafjölda, þ.m.t. börn.

Á landsvísu hafa nú um 188 þúsund einstaklingar fengið að minnsta kosti einn skammt, tæplega 102 þúsund manns eru nú fullbólusettir. Í heild hafa verið gefnir 274 þúsund skammtar.

Fjallað um vottorðasýnatökur.   T.d. voru tekin 60 sýni s.l. föstudag í Borgarnesi vegna vottorða fyrir ferðamenn.

 

  1. Framkvæmdir og útboð

Rætt um framkvæmdir og skipulag mönnunar á Akranesi, sérstaklega læknamönnun aðstoðarlækna og hjúkrunarfræðnga á slysadeild.  ÞB sagði að þröskuldur ætti að vera sérstaklega hár vegna mögulegar innlagna og aðkomu vakthafandi sérfræðilækna.

Fundað verður um tilboð í Stykkishólmi nú kl. 15:00 í dag með stýrihópi um framkvæmdir þar.

Þá kom fram hjá JFJ að unnið væri að samantekt um óskir um helstu framkvæmdir á næsta ári fyrir Ríkiseignir.

Þá sagði JFJ frá því að HVE hafi leitað efir samþykkt um að selja Dílahæð 3 og fá tvær íbúðir þessi í stað.  HVE mun halda Dílahæð 5 áfram fyrir lækni.

ÞBH sagði frá hugmynd deildarstjóra slysadeildar um að losa tvær stofur hið fyrsta, en því miður erum húsnæði enn bundið, tengist öðrum framkvæmdum.

 

  1. Mannauðsmál

Fram kom hjá ÞB að unnið væri að ráðningu á lækni á heilsugæsluna.   Ástandið í Borgarnesi er mjög slæmt núna, kandídat sem átti að vera við störf á næstu mánuðum er dottinn út þar sem yfirlæknir þar er að láta af störfum.  Tvær umsóknir bárust um yfirlæknisstöðuna þar, en líklega er annar þeirra aðila að draga sig út frá þessari umsókn. Fyrirséð er að setja þarf hina umsóknina í ferli hjá stöðunefnd.

Sæmileg mönnun er út þennan mánuð þar, en fer að þynnast strax í júlí.  Unnið er að því að fá inn lækna til starfa, málið rætt ítarlega, en ástandið er grafalvarlegt.

Næsti fundur framkvæmdastjórnar er fyrirhugaður þann 18. ágúst.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:40

Ásgeir Á. ritaði fundargerð.