Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn miðvikudaginn 8. september kl. 9:00 á Akranesi.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson. Rósa Marinósdóttir er í orlofi.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar
Fundargerð frá 1. september 2021 lögð fram og samþykkt.
- COVID, staðan
ÞB fjallað um stöðu mála. Á Vesturlandi eru 10 í einangrun og 25 í sóttkví. Hann sagði að álagið á Landspítala væri að lagast.
Fram kom að lítið væri um hraðpróf eins og er, en HVE hefur undibúið málin vel og allir staðir okkar tilbúnir ef þörf verður á.
Rætt um álag á heilbrigðisstarfsfólki vegna Covid, hvort og hvernig eigi möulega útvistun á ákveðnum verkum. Sýnatökur og hraðpróf ættu að vera fært út.
- Framkvæmdir
Farið yfir framkvæmdir á Akranesi og Stykkishólmi. Fundað var með yfirmönnum vegna framkvæmda á Akranesi, verkið þar er í megin atriðum á áætlun. Rætt um hávaða undanfarið, semja þarf við verktaka um að vinna ákveðna vinnu utan dagvinnu.
Þá kom fram að í næstu viku muni verkáætlun vegna skurðstofu liggja fyrir. Áætlað er að verkið hefjist 30. september. Búið er að panta skurðstofna, henni fylgir ýmis búnaður, svo sem súlur vegna ljósa, nettengingar og fleira. Nauðsynlegt verður að kaupa rafhlöður – UPSa fyrir þessa skurðstofu.
JFJ sagði að hún væri að fara á fund með Hrefnu og Þórnýju vegna framkvæmda á Stykkishólmi. Þar hafa komið upp vandamál tengd lofræstingu og fleira sem mögulega seinkar framkvæmdum um lágmark einn mánuð. Rætt um háls-og bakdeildina, unnið er að því að koma hluta starfseminar í prentsmiðjuna.
- Liðskiptaaðgerðir
Lagt fram erindi frá Helgu Harðardóttur hjá HRN dags. 31. ágúst þar sem staðfest er að ráðuneytið veiti HVE fjármagn til að fjölga liðskiptaaðgerðum um 50 á tímabilinu 1. september 2021 til 31. ágúst 2022.
Rætt um auglýsingar eftir starfsmönnum í tengslum við aukningu á liðskiptaaðgerðum. Þá var umræða um innskriftir sjúklinga. Málið er í skoðun.
Fram kom hjá ÞBH að í skoðun væri innleiðing á rafrænum lyfjafyrirmálum, E-med.
- Skipurit, boðleiðir og staðarstjórn
Fjallað var um skipurit, boðleiðir og staðarstjóra.
Samþykkt að taka vinnudag um málefnið á næstunni með sviðstjóra heilsugæslunnar.
- Fjármagn vegna sérnáms heilbrigðisstarfsmanna á HVE
JFJ sagði frá erindi þar sem fagráð um mönnun og menntun heilbrigðisstarfsmanna óskar eftir fundi um málefnið.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:45.
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.