Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 15. september 2021 kl. 13:00 um Teams.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson og Ásgeir Ásgeirsson. Vilborg Lárusdóttir sat einnig fundinn.
Umsjónarmenn: Aldís Olga Jóhannesdóttir, Hrefna Frímannsdóttir, Berit Sveinbjörnsdóttir og Jóhann Björn Arngrímsson.
Dagskrá.
- Fjármál og rekstur.
Fjallað um fjármál og rekstur. Fram kom að rekstur væri nú erfiður og væri um 2,9% halli, eða um 140 m.kr. að frádregnu áunnu orlofi. En þegar tekið er tillit til covid kostnaðar nú, 45 m.kr. og áætlaðan kostnað vegna betri vinnutíma, nú 30 m.kr. má gera ráð fyrir að halli fari niður í 1,3% halli. ÁÁ sagði þó að fjármögnunarlíkan heilsugæslunnar væri ekki í takt við raunkostnað nú, enda er lang stærsti hluti þessa halla á heilsugæsluviði. Vinna þarf að úttekt í samráði við ráðuneytið á líkaninu.
- COVID, staðan.
Farið yfir stöðu mála vegna Covid.
ÞB sagði stöðuna á okkar svæði gott og í raun væri engin í einangrun á okkar svæði. Í það heila eru 4 í sóttkví, þar af 2 af höfuðborgarsvæðinu. 336 eru í einangrun á landsvísu, kúrfan gengur örugglega en þó rólega niður á við. ÞBH sagði að bólusetningar hafi gengið vel nú sem fyrr. Nú er verið að vinna að örvunar bólusetningu og fyrir 12 til 15 ára ungmenni og svo auðvitað þeir sem ekki hafa þegið neina bólusetningu enn sem komið er. Fram kom að góð mæting væri hjá ungmennum, allt að 75%.
ÞBH benti á hvar hægt væri að bóka í hraðpróf. www.hradprof/covid.is
- Mælaborð starfemis- og fjárhagsupplýsinga.
Rætt um innleiðingu á Qlik stafrænu mælaborð. Farið yfir nokkra hluta kerfisins. Kerfið mun draga fram rauntíma upplýsingar úr fjárhagskerfum, launakerfum og sjúkraskrárkerfum, þ.e. þeim hlutum er lúta að þjónustu og framlegð. Rósa Mýrdal heldur utan um verkefnið.
- Betri vinnutími í dagvinnu.
Umræða var um betri vinnutíma í dagvinnu.
Fjallað um málið, lagt var upp með til 8 mánaða reynslutíma sem rann út núna í lok ágúst. Fram kom að í megin atriðum hafi þetta verkefnið gengið ágætlega en einhverjar einingar eiga þó erfitt með að ná tímanum saman eftir þessar breytingar.
Farið yfir stöðuna á hverri starfsstöð.
- Fréttir frá starfsstöðvum.
Umsjónarmenn staða fóru yfir helstu mál sinna starsfstöðva.
Umræða var almennt um læknisþjónustu á landsbyggðinni.
- Útgáfa verklagsreglu um raka í húsnæði.
Lagðar fram verklagsreglur um raka í húsnæði.
Næsti fundur er fyrirhugaður þann 6. október.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:05
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.