Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 06.10.2021 kl. 9:00 á Akranesi.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar
Fundargerð frá 29.09 2021 lögð fram og samþykkt.
- COVID, staðan
Fjallað um covid stöðuna núna, fram kom hjá ÞB að í dag voru á Vesturlandi. Fjöldi smita á landinu yfir 460 manns og í sóttkví yfir 2000 manns. Slæmt ástand á Akureyri.
Lögregluumdæmi Vesturlands 7 í einangrun og 12 í sóttkví.
Ástand á Vesturlandi er gott.
Rætt um hraðpróf starfsmanna og hvernig framkvæmd eigi að vera á þeim.
- Rýmingaráætlun
JFJ fór yfir nýja rýmingaráætlun fyrir Akranses sem er tilbúin. Unnin fyrir HVE vegna nýlegs brunaviðvörunarkerfis.
Á morgun 7.10.2021verður fundur með forstjóra, Halldóri Hallgrímssyni og fleiri starfsmönnum
Sett verður kynning inn á Workplace fyrir starfsmenn.
Sett verða spjöld upp á starfseiningum.
- Fyrirhugaður fundur með fagráði HVE
Fagráð HVE hefur hittst. Farið yfir fundargerðir frá þeim. Ráðgert er að hitta fagráðið í næstu viku til að fara yfir skipun og hlutverk fagráðsins.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 09:45
Rósa Marinósdóttir ritaði fundargerð