Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn, miðvikudaginn 13. október 2021 kl. 9:00 á Akranesi.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson, Ásgeir Ásgeirsson og Vilborg Lárusdóttir.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar
Fundargerð frá 6.október 2021 lögð fram og samþykkt.
- COVID, staðan
Fjallað um covid stöðuna nú í dag. Fram kom hjá ÞB að nú væru 451 í einangrun á landsvísu og 1.562 í sóttkví. Stór hluti þeirra sem eru í sóttkví eru á Akureyri. Á Vesturlandi eru nú 5 í einangrun.
Von er á nýjum reglum yfirvalda þann 20. október n.k.
Fjallað um erindi Rósu Mýrdal varðandi upplýsingar á heimasíðu HVE. En til þessa hefur HVE almennt ekki verið að taka ferðamannasýni. Enda eru kröfur um þessi vottorð almennt dottinn niður. HVE mun því ekki taka að sér þessar sýnatökur.
Fram kom að þær upplýsingar sem eru á heimasíðu HVE halda sér eins og fyrr.
- Mannauðsmál
Fjallað um mannauðsmál.
- Samþykki fyrir aðgerð – kynning á eyðublaði.
Rætt um upplýst samþykki fyrir aðgerð og lagt fram eyðublað til undirritunar sjúklings.
Framkvæmdastjórn staðfestir að þessar reglur eiga að vera í gildi, enda gerir landlæknir ráð fyrir þessu vinnulagi. Fram kom að þessi blöð séu tilbúinn fyrir hvern sjúkling fyrir aðgerð og ætti því ekki að vera íþyngjandi. Fram kom að á Landspítalanum fái læknir ekki að skera sjúkling ef þetta samþykki liggi fyrir. Um þetta eru í gildi lög og reglur.
- Fjármögnunarlíkan heilsugæslunnar og ný verkefni henni tengd
Fjallað um fjármögnunarlíkan heilsugæslunnar. Fundarmenn sammála um að taka þurfi fullt mið af líkani við gerð áætlunar á hverja starfsstöð fyrir næsta ár.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:25
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.