Fundur haldinn hjá framkvæmdastjórn miðvikudaginn 20. október 2021 kl. 9:00 á Akranesi.
Mættir: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Þura B. Hreinsdóttir, Rósa Marinósdóttir, Þórir Bergmundsson, Vilborg Lárusdóttir og Ásgeir Ásgeirsson.
Dagskrá.
- Samþykkt síðustu fundargerðar
Fundargerð frá 13. október 2021 lögð fram og samþykkt.
- COVID, staðan
Fjallað er um covid stöðuna í dag, fram koma hjá ÞB að á Vesturlandi væru 14 í einangrun. 125 eru í sóttkví. Á landsvísu eru 562 í einangrun og 1.564 í sóttkví. 376 í skimunarsóttkví, 7 eru á sjúkrahúsi. ÞB segir faraldinn á uppleið.
Gerðar voru breytingar á sóttvarnarreglum þann 20. október, nú mega 2.000 manns koma saman í stað 500 áður. Þá er almenn grímuskylda afnumin. Heilbrigðisstofnunum er þó heimilt að hafa áfram grímuskyldu.
ÞB metur það svo að ekki sé tímabært að fella niður grímuskyldu hjá HVE að svo stöddu, enda séu smit á uppleið.
Ákveðið að bíða eftir hvað aðrar heilbrigðisstofnanir og Landspítali gerir eftir þessar breytingar á reglugerð. ÞB skoðar málið.
- Framkvæmdir
JFJ fór yfir framkvæmdir hjá HVE. Fram koma að nú væri lyflækningadeildin líklega um 10 dögum á eftir áætlun, en verkið þó gengið ágætlega þar.
Vandamál komu upp varðandi byggingu á skurðstofunni vegna loftabita, mun mögulega tefja málið um nokkrar vikur. Þá kom fram að vatn hafi lekið inn á nokkrar stofur á heilsugæsluálmu í rigningunni undanfarið, en líklega er búið að tryggja lekavarnir núna.
Unnið er að lausnum á húsnæði fyrir heilbrigðisgagnafræðinga, fundur er með Ríkiseignum nú í dag vegna málsins.
Í Stykkishólmi eru framkvæmdir á fullu, en ekki liggur endanlega fyrir hvenær sú framkvæmd klárast.
- Fjárhagsleg málefni og stöðufundur 4. ársfjórðungs með HRN 10.nóvember
Rætt um fjárhagsleg málefni. Fram kom að rekstrarstaðan væri slæm um þessar mundir.
Búið er að boða okkur á fund með ráðuneyti þann 10. nóvember n.k. Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
Dagskrá fundar:
- Rekstrarstaða stofnunar, janúar til og með september 2021
- Útkomuspá fyrir árið 2021
- Rekstraráætlun stofnunar árið 2022
- Starfsáætlun stofnunar árið 2022
- Önnur mál
JFJ fór lítilega yfir stefnuskjal og ársáætlun.
Rætt um erfiða rekstrarstöðu nú. Ljóst er að miðað við núverandi stöðu má gera ráð fyrir umtalsverðum niðurskurði á næsta ári.
- Vinna við Qlik mælaborð
Rætt um vinnu við Qlik mælaborðið. Fljótlega verður opnað fyrir aðgang fyrir stjórnendur.
- Undirbúningur fundar í Ólafsvík.
Fjallað um fund okkar í Ólafsvík. Fulltrúar framkvæmdastjórnar munu funda með Viktoríu og Dagnýju. Vinna þarf að áætlunardrögum að samvinnu þessara tveggja heilsugæslunnar á Grundarfirði og í Ólafsvík. Bæði hvað varðar læknis- og hjúkrunarþjónustu.
Þá var rætt um lyfjasíma og símaþjónustu.
Almenn umræða var um hlutverk yfirmanna, sérstaklega yfirlækna.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:15.
Ásgeir Á. ritaði fundargerð.